Sport

Missti níu leik­menn milli tíma­bila: „Passar mjög vel við aðstoðarþjálfarastarfið“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson skipa þjálfarateymi íslenska landsliðsins í handbolta. 
Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson skipa þjálfarateymi íslenska landsliðsins í handbolta.  Vísir/Vilhelm

Arnór Atlason verður þjálfari Holstebro næstu þrjú árin. Hann segir að starfið fari vel saman við það að vera aðstoðarþjálfari landsliðsins.

Arnór hefur samið við Holstebro til ársins 2028 en hann tók við liðinu fyrir tveimur árum og hefur gert góða hluti með liðið síðan þá. Á síðasta tímabili komst Holstebro í undanúrslit úrslitakeppninnar og Arnór var í kjölfarið valinn þjálfari ársins í Danmörku.

„Ég vona að við getum haldið áfram að lyfta þessu upp á hærra plan. Við erum búnir að ná fínum árangri á þessum tveimur árum. Þetta var erfitt fyrsta ár og okkur langar að komast aftur í úrslitakeppnina,“ segir Arnór Atlason í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi.

„Holstebro var fyrir svona átta, níu árum stabíll topp fjögur lið í Danmörku sem hefur bæði verið í úrslitum og orðið bikarmeistari. En á síðustu þremur árum hefur þetta verið erfiðara og fyrir þremur árum rétt slapp liðið við fall og við þurftum að spila um það, rétt eins og við þurftum að gera á mínu fyrsta ári. Þetta er búið að vera mikill öldudalur. Fyrir þetta tímabil skiptum við alveg níu leikmönnum út sem er alveg svakalega mikið í handbolta,“ segir Arnór en liðið er nú skipað mörgum ungum leikmönnum sem eiga framtíðina fyrir sér.

Markmið Arnórs í þjálfun eru skýr, að einbeita sér að því félagi sem hann er hjá hverju sinni.

„Starfið passar mjög vel við aðstoðarþjálfarastarfið hjá landsliðinu og það er stór partur af því að ég held áfram, að þetta passi mjög vel saman og það er ekki víst að það geri það annars staðar. Hvað varðar mín markmið, þá finnst mér maður bara skulda því liði sem maður er hjá hverju sinni að vera hundrað prósent einbeittur á það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×