Segir að Liverpool-menn muni sennilega aldrei jafna sig á fráfalli Jota Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. september 2025 16:01 Andy Robertson og Diogo Jota var vel til vina. Þeir spiluðu saman hjá Liverpool um fimm ára skeið. getty/Nikki Dyer Andy Robertson efast um að leikmenn Liverpool muni nokkru sinni jafna sig á fráfalli Diogos Jota.
Portúgalinn lést í bílslysi á Spáni ásamt bróður sínum, André Silva, í júlí. Jota var 28 ára. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú ung börn. Robertson lék með Jota hjá Liverpool og segir að fráfall hans hafi verið þungt högg fyrir leikmannahópinn. „Þetta setur hlutina í samhengi, varðandi hvað er mikilvægt, að verja tíma með fjölskyldunni og börnunum því þú veist aldrei hvað bíður handan við hornið,“ sagði Robertson. „Þetta er það erfiðasta sem við munum ganga í gegnum. Að missa einn þinn nánasta vin var mér gríðarlega þungbært og þetta er eitthvað sem við munum sennilega aldrei jafna okkur á. En þetta er byrði sem við verðum að bera,“ bætti Skotinn við. Jota gekk í raðir Liverpool frá Wolves 2020. Hann lék 182 leiki fyrir Rauða herinn og skoraði 65 mörk. Jota varð Englandsmeistari með Liverpool á síðasta tímabili. Eftir fráfall Jota lagði Liverpool treyju númer tuttugu til hliðar, honum til heiðurs. Enginn leikmaður Liverpool mun nota treyju númer tuttugu í framtíðinni.
Enski boltinn Andlát Diogo Jota Mest lesið Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Kominn með einkaleyfi á kaldasta fagnið í bransanum Enski boltinn Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Körfubolti Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn Rúmlega þúsund leikmenn til rannsóknar: Liðsfélagi Loga settur í bann Fótbolti Sesko ekki með sjálfstraust og dregur sig úr landsliðshópnum Fótbolti Blikarnir taplausir á toppnum Körfubolti Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Alexandra lagði upp og María fór á kostum í Íslendingaslag Fótbolti Fleiri fréttir Kominn með einkaleyfi á kaldasta fagnið í bransanum Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Sjá meira