Fall reyndist fararheill hjá Eyjakonum Valur Páll Eiríksson skrifar 26. ágúst 2025 09:30 Jón Ólafur Daníelsson stýrir ÍBV sem er búið að vinna Lengjudeild kvenna. vísir/valur páll ÍBV er sigurvegari Lengjudeildar kvenna í fótbolta og mun því spila á ný á meðal þeirra Bestu að ári eftir tveggja ára fjarveru.
ÍBV féll úr Bestu deildinni sumarið 2023 eftir erfitt tímabil. Í kjölfarið var Jón Ólafur Daníelsson ráðinn þjálfari þess og stefnan sett á að komast aftur upp. Það tókst hins vegar ekki í fyrstu tilraun í fyrra. Allt annað hefur verið að sjá til Eyjakvenna í sumar, sem töpuðu þó fyrsta leik í deildinni. Liðið hefur ekki tapað leik síðan og má segja að fall hafi verið fararheill. „Eftir það upphófst frábær tími í deild og bikar og greinileg merki þess að við ættum möguleika á því að fara langt í bikarkeppninni og jafnvel alla leið að klára deildina og þetta gekk mjög flott eftir,“ sagði Jón Ólafur. Eftir tapið í 1. umferð hefur ÍBV ekki tapað leik í Lengjudeildinni og er búið að vinna hana. ÍBV fékk sterka leikmenn fyrir tímabilið, meðal annars Allison Lowrey sem er markahæst í Lengjudeildinni með 21 mark. „Við fengum góða Bandaríkjamenn sem eru ekki bara góðar í fótbolta heldur gefa heilmikið af sér til yngri leikmanna og eru mjög vel liðnar í samfélaginu. Þetta verður eitt af litlu hlutunum í samspili þess að búa til frábæra liðsheild,“ sagði Jón Ólafur. Hann vill halda erlendu leikmönnum ÍBV fyrir næsta tímabil í Bestu deildinni. „Samningaviðræður eru í gangi og mér er sagt að það gangi bara vel. Þá ættum við að vera með sama hóp en að sjálfsögðu þurfum við aðeins að auka breiddina. Þetta slapp í sumar á fáum leikmönnum en það gerir það nú bara einu sinni,“ sagði Jón Ólafur. Viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Lengjudeild kvenna ÍBV Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira