Þróttarar fyrstir til að vinna Njarðvíkinga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. ágúst 2025 16:30 Njarðvík tapaði sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu í dag en Fylkir vann langþráðan sigur. vísir/óskaró Eftir að hafa verið ósigraðir í fyrstu sautján leikjum sínum í Lengjudeild karla tapaði Njarðvík fyrir Þrótti, 2-3, á heimavelli í dag.
Viktor Andri Hafþórsson skoraði sigurmark Þróttara í upphafi seinni hálfleiks. Hann skoraði einnig tvö mörk í 3-1 gegn ÍR-ingum í síðustu umferð. Kári Kristjánsson og Aron Snær Ingason voru einnig á skotskónum hjá Þrótti sem er kominn upp í 2. sæti deildarinnar. Sigurjón Már Markússon og Freysteinn Ingi Guðnason skoruðu mörk Njarðvíkur sem er nú bara með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Fylkir vann sinn fyrsta leik undir stjórn Arnars Grétarssonar þegar liðið valtaði yfir Keflavík á heimavelli, 4-0. Benedikt Daríus Garðarsson skoraði tvö mörk fyrir Árbæinga og Arnór Breki Ásþórsson og Guðmundur Tyrfingsson sitt hvort markið. Þrjú síðustu mörk Fylkis komu á fimm mínútna kafla í seinni hálfleik. Þetta var fyrsti sigur Fylkismanna síðan 28. júní. Þeir eru samt enn á botni deildarinnar, nú með fjórtán stig. Fjölnir vann einnig langþráðan sigur á Selfossi, 1-2. Fjölnismenn eru með fimmtán stig í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar. Orri Þórhallsson og Daníel Ingvar Ingvarsson skoruðu fyrir Fjölni en Jón Daði Böðvarsson skoraði annan leikinn í röð fyrir Selfoss sem er í 9. sæti deildarinnar með sextán stig. HK kom til baka og náði í stig gegn Grindavík í Kórnum. Lokatölur 3-3. HK-ingar voru 1-3 undir þegar fimm mínútur voru til leiksloka en mörk frá Jóhanni Þór Arnarssyni og Þorsteini Aroni Antonssyni tryggðu heimamönnum stig. Undir lok leiksins var HK-ingurinn Aron Kristófer Lárusson rekinn af velli og þjálfari liðsins, Hermann Hreiðarsson, fór sömu leið. Adam Árni Róbertsson skoraði tvö mörk fyrir Grindavík en hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og er markahæstur í deildinni með tólf mörk. Árni Salvar Heimisson var einnig á skotskónum fyrir þá gulu sem eru í 8. sæti með átján stig. Dagur Orri Garðarsson skoraði fyrsta mark HK sem er í 5. sæti deildarinnar með 31 stig. HK-ingar hafa aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum sínum. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Lengjudeild karla UMF Njarðvík Þróttur Reykjavík Fylkir Keflavík ÍF UMF Selfoss Fjölnir HK UMF Grindavík Mest lesið Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Körfubolti KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira