Enska augnablikið: Sá allra svalasti Valur Páll Eiríksson skrifar 12. ágúst 2025 08:02 Cantona var einfaldlega kóngurinn. Henry Birgir fær enn gæsahúð þegar hann hugsar til marksins fræga. Samsett/Vísir/Getty Fjórir dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Það er einn maður í sögu deildarinnar sem er einfaldlega svalari en aðrir. Sá heitir Eric Cantona og er í miklu uppáhaldi hjá Henry Birgi Gunnarssyni, líkt og fleirum. „
Tíminn sem Eric Cantona spilaði með Man. Utd er minn uppáhaldstími í enska boltanum. Maðurinn var snillingur og þú vissir aldrei hvað myndi gerast næst. Maður sat bara límdur í sófanum og beið eftir næstu snilld eða sturlun frá Frakkanum,“ segir Henry Birgir er hann rifjar upp Cantona-tímann. Cantona kom til Englands árið 1991 þegar Leeds borgaði Nimes eina milljón punda fyrir kappann. Hann hafði brennt þónokkrar brýr í heimalandinu og hafði Michael Platini reynt að koma honum að víðar á Englandi fyrir skiptin. Graeme Souness sagði takk en nei takk við að fá Cantona til Liverpool vegna áhrifa sem hann gæti haft á stemninguna í klefanum og Sheffield Wednesday hafði ekki efni á Frakkanum sem hafði verið á reynslu í stálborginni um hríð. Klippa: Enska augnablikið: Kóngurinn Cantona Cantona var hjá Leeds frá janúar 1992 fram í nóvember þegar hann bað um sölu eftir að hafa verið settur út úr liðinu. Hann spilaði fyrsta leikinn í byrjun desember það ár og það var ekki aftur snúið. Franski kóngurinn var mættur til Manchester. „Það var enginn maður með mönnum nema vera með kragann uppi eins og king Eric. Það var alvöru költ í kringum Cantona.“ Frakkinn skoraði mörg eftirminnileg mörk fyrir United en þetta mark er í uppáhaldi hjá Henry. „Þetta mark á móti Sunderland er svo geggjað. Cantona byrjar á því að hrista af sér hálft Sunderland-liðið eins og ekkert sé sjálfsagðara. Það er eins og hann sé að spila á móti strákum í yngri flokkum. Gæðin gjörsamlega leka af honum. „Afgreiðslan er svo algjörlega úr efstu hillu. Markið er ekki bara meiriháttar heldur er fagnið ekki síður goðsagnakennt. Þarna stendur kóngurinn á sviðinu, með kragann uppi, og horfir á lýðinn sem hyllir hann. Eins og ekkert sé eðlilegra en að hann hafi hlaðið í þessa snilld. Einstakur fótboltamaður og karakter. Sá svalasti sem hefur spilað í enska boltanum.“ Ekki aðeins má sjá mark Cantona gegn Sunderland í spilaranum heldur öll fimm bestu mörk hans í deildinni. Sjón er sögu ríkari. Henry Birgir mun lýsa leikjum í enska boltanum á Sýn Sport í vetur. Hér má tryggja sér áskrift að enska boltanum hjá Sýn Sport.
Enski boltinn Enska augnablikið Tengdar fréttir Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Fjórir dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir réði sér vart fyrir kæti þegar hinn 17 ára gamli Federico Macheda skoraði mark sem fór langt með að tryggja Manchester United enska meistaratitilinn árið 2009. 11. ágúst 2025 15:01 Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Fjórir dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Ríkharð Óskar Guðnason er einn mesti Paolo Di Canio maður landsins og sem ungur maður keypti hann sér treyju merkta Ítalanum þrátt fyrir að styðja allt annað lið. 11. ágúst 2025 08:02 Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Fimm dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Enski boltinn hefur haft mikil áhrif á sálartetur Kjartans í gegnum tíðina og leikur Manchester United og Tottenham vorið 1999 gleymist seint. 10. ágúst 2025 15:01 Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Sjö dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Bjarni Guðjónsson var leikmaður Newcastle og sat í stúkunni þegar liðsfélagi hans gekk berserksgang á St. James' Park. 8. ágúst 2025 15:00 Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Fimm dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Kristjana Arnarsdóttir fór í eftirminnilega ferð á Anfield veturinn 2002. 10. ágúst 2025 08:01 Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Sex dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Lárus Orri Sigurðsson gleymir seint fyrsta leiknum sem hann spilaði í deild þeirra bestu á Englandi. 9. ágúst 2025 15:02 Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Sjö dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Hjörvar Hafliðason gleymir seint leik Manchester United og Sheffield Wednesday vorið 1993. 8. ágúst 2025 08:01 Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum Handbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Fleiri fréttir De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Sjá meira
Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Fjórir dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir réði sér vart fyrir kæti þegar hinn 17 ára gamli Federico Macheda skoraði mark sem fór langt með að tryggja Manchester United enska meistaratitilinn árið 2009. 11. ágúst 2025 15:01
Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Fjórir dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Ríkharð Óskar Guðnason er einn mesti Paolo Di Canio maður landsins og sem ungur maður keypti hann sér treyju merkta Ítalanum þrátt fyrir að styðja allt annað lið. 11. ágúst 2025 08:02
Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Fimm dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Enski boltinn hefur haft mikil áhrif á sálartetur Kjartans í gegnum tíðina og leikur Manchester United og Tottenham vorið 1999 gleymist seint. 10. ágúst 2025 15:01
Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Sjö dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Bjarni Guðjónsson var leikmaður Newcastle og sat í stúkunni þegar liðsfélagi hans gekk berserksgang á St. James' Park. 8. ágúst 2025 15:00
Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Fimm dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Kristjana Arnarsdóttir fór í eftirminnilega ferð á Anfield veturinn 2002. 10. ágúst 2025 08:01
Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Sex dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Lárus Orri Sigurðsson gleymir seint fyrsta leiknum sem hann spilaði í deild þeirra bestu á Englandi. 9. ágúst 2025 15:02
Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Sjö dagar eru þar til boltinn fer að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Sýn Sport. Af því tilefni munu sérfræðingar rifja upp eftirminnileg augnablik úr deildinni. Hjörvar Hafliðason gleymir seint leik Manchester United og Sheffield Wednesday vorið 1993. 8. ágúst 2025 08:01
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn