Handbolti

Ekkert spilað í þrjú ár eftir í­trekuð læknamistök

Valur Páll Eiríksson skrifar
Darri Aronsson er óviss um hvað tekur við en er viss um að meiðslin séu loks að baki.
Darri Aronsson er óviss um hvað tekur við en er viss um að meiðslin séu loks að baki. Vísir/Bjarni

Darri Aronsson vonast til að komast aftur á handboltavöllinn í haust eftir þrjú ár í atvinnumennsku þar sem hann spilaði ekki neitt. Ítrekuð læknamistök héldu honum utan vallar allan hans tíma í Frakklandi.

Samningur Darra við lið Ivry í París rann út í sumar en hann gekk í raðir liðsins haustið 2022. Hann kom þá meiddur út til liðsins, álagsbrot í rist gerði vart við sig. En þegar samningur hans þar ytra rann út nú í vor hafði hann ekki enn spilað fyrir franska félagið, vegna ítrekaðra meiðsla sem hafa elt hann á röndum síðan.

„Þetta voru svo sannarlega skrautleg ár. Ég þurfti að vera mikið í endurhæfingu vegna meiðsla. Þetta var tími sem tók á,“

„Læknarnir úti vildu ekki hlusta á leiðbeiningarnar hérna heima. Brynjólfur, læknir í Orkuhúsinu, vildi láta negla mig. En þeim fannst það ekki. Þannig að ég sinni endurhæfingunni eins og þetta sé venjulegt brot og kem svo til baka. En í upphitun á fyrstu æfingu til baka brotna ég á sömu rist,“ segir Darri.

Álagsbrot í rist plagaði Darra þegar hann kom út og sama rist brotnaði á fyrstu æfingu eftir að hann hafði jafnað sig.Úr einkasafni

Loks þegar Darri hafði jafnað sig af ristarmeiðslunum kom hins vegar næsta áfall, þegar hann meiddist illa á hné.

„Það er fyrir tveimur árum síðan sem það gerist. Og þau meiðsli eiga vanalega að taka eitt ár eða slíkt. En vegna þess að ég er sendur í endurhæfingarmiðstöð í Suður-Frakklandi. Þá hafði allt gengið vel í endurhæfingunni en þar er ég bara yfirþjálfaður sem gerir að verkum að ég þurfti að fara í tvær auka aðgerðir,“ segir Darri.

Þegar ristarmeiðsli tvö voru að baki fór hnéð.Úr einkasafni

Eru þetta þá ítrekuð læknamistök þarna úti?

„Það má segja það. Það var farið full geyst í þetta,“ segir Darri.

Tíminn í Frakklandi var ekki alslæmur þrátt fyrir allt. Darri og kærasta hans eignuðust son þar ytra.Úr einkasafni

Meiðslin ítrekuðu hafi vissulega tekið á. Hann lítur þó ekki illa aftur á tíma sinn í frönsku höfuðborginni.

„Þetta var virkilega krefjandi. En samt góður tími líka. Þetta hefur alveg mótað mann, eins og aðrir hlutir sem maður hefur gengið í gegnum. Að búa í París er auðvitað einstök upplifun og svo eignaðist ég lítinn strák sem kannski gefur manni ekki tíma til að vorkenna sjálfum sér,“ segir Darri léttur.

Darri er kominn aftur út á handboltavöll og farinn að æfa með uppeldisfélagi sínu Haukum. Hann vonast til að snúa aftur á völlinn í haust en óvíst er hvar. Samkvæmt handkastid.is spilar Darri með Haukum hér heima í vetur en hann vildi ekki staðfesta næstu skref við íþróttadeild.

Viðtalið má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×