Lífið

Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg

Jón Ísak Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Jakob Frímann aðalskipuleggjandi tónleikanna segir að allt sé að verða klárt fyrir tónlistarhátíðina á morgun.
Jakob Frímann aðalskipuleggjandi tónleikanna segir að allt sé að verða klárt fyrir tónlistarhátíðina á morgun. Sýn

Nú streymir fólk í Vaglaskóg, þar sem stórtónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á morgun. Undirbúningur hefur gengið vel að sögn tónleikahaldara og allt er að verða tilbúið fyrir stóra daginn.

„Það má segja að það sé þegar farið að streyma fólk á svæðið, og það verður smá kvöldstemning hérna, svona íslenskur skógarfjöldasöngur um níuleytið,“ segir Jakob Frímann Magnússon aðalskipuleggjandi tónleikahátíðarinnar.

„Á morgun ætlum við að hafa þetta dreift yfir dagin, það eru sjö þúsund manns að koma hingað og við erum að reyna hafa eins litla bið í Vaðlaheiðinni og göngunum eins og mögulegt er þannig þetta verði ánægjuleg upplifun frá A til Zetu,“ segir Jakob en Bjarki Sigurðsson ræddi við hann í kvöldfréttum Sýnar.

Góð stemning í sveitinni og mannskapnum

Jakob segir að þegar sé orðin mjög góð stemning í sveitinni og öllum mannskapnum.

„Þetta er semsagt hraðast uppseldi viðburður Íslandssögunnar, hann seldist upp eiginlega áður en byrjað var að auglýsa hann.“

„Það er auðvitað mikil eftirvænting að heyra í Kaleo, tíu árum eftir að þeir fóru í sína löngu ferð um heiminn, sem stendur enn yfir nota bene.“

„Svo er fullt af öðrum listamönnum sem koma hér fram og við erum bara að hlakka til þess að njóta þess góða veðurs og þeirrar dásamlegu náttúru sem hér er, alveg með því fallegasta sem hægt er að bjóða upp á í heiminum,“ segir Jakob Frímann.

Fréttastofa ræddi einnig við nokkra gesti sem þegar höfðu komið sér fyrir á tjaldstæðinu í Vaglaskógi.

Örvar segir að honum lítist heldur betur vel á stöðuna.

„Já heldur betur, er ekki tuttugu stiga hiti og tónleikarnir á morgun? Og maður búinn að koma sér fyrir,“ segir Örvar.

Hefur þig lengi langað að sjá Kaleo?

„Ég fór til Lissabon í nóvember, þannig þetta eru aðrir tónleikarnir núna.“

Örvar fór að sjá Kaleo í Portúgal í nóvember og er spenntur að sjá þá aftur á morgun.Sýn

Tengdar fréttir

Svona verða stórtón­leikar Kaleo í Vagla­skógi

Jakob Frímann Magnússon, einn aðalskipuleggjenda stórtónleika Kaleo í Vaglaskógi næsta laugardag, segir að allur undirbúningur hátíðarinnar hafi gengið vel. Stærsta áskorunin verði að koma öllum sjö þúsund tónleikagestum á svæðið í tæka tíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.