Xhaka of mikilvægur til að selja til Sunderland Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. júlí 2025 10:17 Erik Ten Hag vill ekki selja Granit Xhaka frá Bayer Leverkusen. Jörg Schüler/Bayer 04 Leverkusen via Getty Images Erik Ten Hag, þjálfari Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, segir svissneska miðjumanninn Granit Xhaka of mikilvægan liðinu til að selja til Sunderland, þrátt fyrir að hann vilji sjálfur fara þangað.
Umboðsmaður Xhaka hefur staðfest að samkomulag sé í höfn milli hans og félagsins, aðeins eftir eigi að ganga frá kaupverðinu við Bayer Leverkusen. Ekkert verður hins vegar af félagaskiptunum ef marka má orð Ten Hag í viðtali við Bild: Ten Hag gaf sér tíma milli kokteila á undirbúningstímabilinu til að ræða við blaðamenn. Jörg Schüler/Bayer 04 Leverkusen via Getty Images „Umboðsmaðurinn hans má segja það sem hann vill, en félagið hefur nú þegar misst þrjá mikilvæga leikmenn [Florian Wirtz, Jeremie Frimpong og Jonathan Tah] og við munum ekki leyfa fleirum að fara. Granit er leiðtogi og á þrjú ár eftir af samningi sínum. Ég ætla að vera mjög skýr - Granit er lykilleikmaður, hann skrifaði undir fimm ára samning og á þrjú ár eftir. Hann er of mikilvægur fyrir okkur til að missa hann.“ Xhaka vill fara til Sunderland en verður ekki seldur ef Ten Hag fær að ráða. Pau Barrena/Getty Images Yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, Simon Rolfes, tók undir orð Ten Hag og sagði Xhaka mikilvægan en sagði einnig að félagaskipti væru möguleg. Xhaka hefur spilað 99 leiki fyrir Leverkusen síðan hann kom til liðsins frá Arsenal árið 2023 og átti stóran þátt í tvennutímabilinu 2023-24. Árangurinn var ekki sá sami á þessu tímabili og lykilleikmenn eru farnir frá félaginu. Ten Hag tók við þjálfarastarfinu af Xabi Alonso, sem er orðinn þjálfari Real Madrid.
Þýski boltinn Mest lesið Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Fótbolti Íslandsmetin falla í bunkum á Íslandsmótinu í sundi Sport Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Fótbolti Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Körfubolti „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Formúla 1 Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Handbolti Sanngjarn heimasigur Enski boltinn „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fleiri fréttir Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Rekinn aðeins sex mánuðum eftir að hann yfirgaf Liverpool Mamma og pabbi í stúkunni þegar Emelía skoraði þrennuna í bikarnum Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Sjá meira