Risastór menningarhátíð á Flateyri Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. júlí 2025 10:18 Ragnheiður Gestsdóttir opnar nýtt verk á Flateyri. Aðsend Listalífið á Flateyri iðar sem aldrei fyrr en næstkomandi laugardag hefst þar menningarhátíðin ListaVestrið. Fjöldi íslenskra kanóna koma að hátíðinni og má þar nefna Gabríelu Friðriksdóttur og Hrafnkel Sigurðsson.
Í fréttatilkynningu segir: „Menningarhátíðin ListaVestrið opnar á Flateyri laugardaginn 12. júlí klukkan 16:00. Í galleríinu Undir brúnni, sem er staðsett undir aflagðri brú á Sólbakka rétt utan Flateyrar, opnar myndlistarkonan Ragnheiður Gestsdóttir nýtt verk. Þá verður frumflutningur á nýju tónverki eftir Eirík Stephensen og Rún Árnadóttur þegar opnuð verður hljóðinnsetningin Jökull í Tankinum á Sólbakka. Sá viðburður er styrktur af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Í gömlu Slökkvistöðinni á Brimnesvegi opnar svo myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir innsetninguna Ströndinni.“ Eiríkur Stephensen og Rún Árnadóttir frumflytja tónverk.Aðsend Undanfarin ár hafa Galleríið Undir Brúnni, Tankurinn og Gamla Slökkvistöðin staðið fyrir árlegum menningarviðburðum sem laðað hafa til sín fjölda fólks og vakið verðskuldaða athygli. „Þetta árið hefur verið ákveðið að sameina viðburði sumarsins undir einn hatt undir nafninu ListaVestrið. Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á metnaðarfulla menningarviðburði, fá okkar fremstu listamenn til að taka þátt og efla menningarlíf á Vestfjörðum.“ Gabríela Friðriks er meðal listamanna sem tekur þátt í ListaVestrinu.Aðsend Fleiri listamenn taka þátt í ListaVestrinu í svokölluðu „off venue“ í ár og má þar nefna Jean Larson í Krummakoti Ránargötu 10, Hrafnkell Sigurðsson, sem var valinn myndlistarmaður ársins 2023, í Tankinum, Helga Guðrún á Bryggjukaffi og Bjarni Massi á Vagninum. Fjörið heldur áfram fram eftir nóttu því á Vagninum verður einnig haldið Ógleymaball um kvöldið. Sýningarnar eru opnar daglega á milli klukkan tólf og sex frá tólfta til tuttugasta júlí en gallerýið Undir brúnni er opið allan sólarhringinn næsta árið.
Sýningar á Íslandi Myndlist Menning Ísafjarðarbær Mest lesið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira