Menning

Glat­kistunni lokað

Agnar Már Másson skrifar
Helgi Jóns­son, ritstjóri Glatkistunnar, tók við heiðursverðlaunum Dags íslenskrar tónlistar árið 2023. 
Helgi Jóns­son, ritstjóri Glatkistunnar, tók við heiðursverðlaunum Dags íslenskrar tónlistar árið 2023.  Dagur íslenskrar tónlistar

Glatkistunni, stærsta gagnagrunni sem er að finna um tónlistarlíf á Íslandi, verður lokað. Illa hefur gengið að fá auglýsendur til að styðja við verkefnið og styrkir frá hinu opinbera hafa verið fáir. Fleira efni mun ekki birtast á síðunni „nema auðvitað eitthvað stórkostlegt gerist,“ segir ritstjórinn.

Helgi Jónsson ritsjóri greinir frá þessu í tilkynningu á vef Glatkistunnar

Glatkistan hófst sem skrá utan um plötusafn Helga en vatt síðan upp á sig og varð að þeim gagnagrunni sem hún er í dag. Í kistunni eru um 6.000 greinar um tónlistarmenn, hljómsveitir, tónleikahús, plötur og í raun allt sem viðkemur íslenskri tónlist. Vefsíðan fær nú um 30 þúsund gesti á mánuði, að því er fram kemur í grein Helga sem hann birti í morgun. 

Hann skrifar að auglýsendur hafi ekki sýnt síðunni áhuga og að styrki frá hinu opinbera megi telja á fingrum annarrar handar. Fáeinir einstaklingar hafi þó styrkt framtakið með frjálsum framlögum.

„Því er komið að lokakaflanum, tilraun til að fá Landsbókasafn og ráðuneyti menningarmála í einhvers konar samstarf hefur ekki gengið eftir, og því er lítið annað að gera en að „loka sjoppunni“ sem er pínu sorglegt þar sem hér er um að ræða stærsta gagnagrunn sem til er um íslenska tónlist,“ skrifar Helgi.

Hann vonast þó eftir því að Glatkistan verði aðgengileg eitthvað áfram ef framlög koma inn til að greiða fyrir lén og hýsingu síðunnar.

Frekara efni yrði ólíklega birt á síðunni frá þessum tímapunkti, fyrir utan það efni sem nú þegar liggur tilbúið til birtingar, „nema auðvitað eitthvað stórkostlegt gerist,“ bætir hann við.

„Það stoðar lítið að gráta þótt efnið (og það sem liggur eftir hálf- og óunnið) hverfi nú „í glatkistuna“ en ég vil þess í stað þakka þeim fjölmörgu sem hafa lagt lið við efnisöflun, ábendingar, leiðréttingar, myndefni og annað, og þeim lesendum sem hafa heimsótt vefinn og nýtt sér hann til fróðleiks, í námi eða til skemmtunar. Ég fer sáttur frá borði og get eytt frímtíma mínum í önnur hugðarefni,“ skrifar Helgi og bætir við:

„Takk fyrir mig.“

Ekki hefur náðst í Helga Jónsson, ritstjóra Glatkistunnar, við vinnslu fréttarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.