Fótbolti

Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það var mjög gaman hjá stelpunum okkar eftir sigurinn á Serbum í gærkvöldi.
Það var mjög gaman hjá stelpunum okkar eftir sigurinn á Serbum í gærkvöldi. @footballiceland

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta var búið að spila tíu leiki í röð án sigurs þegar liðið vann langþráðan sigur á Serbum í gærkvöldi.

Íslensku stelpurnar unnu 3-1 sigur á Serbiu í þessum lokaleik sínum fyrir EM og fögnuðu þar með sínum fyrsta sigri í 346 daga eða síðan 16. júlí 2024.

Það má skyggnast á bak við tjöldin í leiknum í gær á samfélagsmiðlum Knattspyrnusambandsins.

Þar er sýnt frá klefanum fyrir leikinn, upphitun, mörkin þrjú sjást frá öðru sjónarhorni og þá má heyra Þorstein Halldórsson tala við stelpurnar bæði fyrir leik, í hálfleik og eftir leik.

„Keyrum á þetta og f-g vinnum þennan leik,“ voru lokaorð Þorsteins fyrir leik. Það virkaði vel enda voru stelpurnar komnar í 2-0 eftir fimm mínútna leik.

Ingibjörg Sigurðardóttir kveikti líka í sínum stelpum í hringnum inn í klefa.

„Við ætlum að taka þennan leik hundrað prósent og vinna hann. Við vitum hvað við erum góðar í og hvenær við erum bestar en það er þegar það er góð orka og við erum að gera það sem við erum góðar í. Vinnum þennan f-g leik,“ sagði Ingibjörg.

Það var gríðarlega heitt á meðan leiknum stóð og stelpurnar notuðu hvert tækifæri til að kæla sig í hálfleiknum.

„Sigur er það er það sem þetta snýst um núna. Áfram svona. Frábær fyrri hálfleikur. Margt jákvætt. Við sköpuðum okkur fullt af færum í þessum leik. Það eru búnir að vera frábærir dagar hérna og við ætlum að halda áfram að hafa þetta frábæra daga,“ sagði Þorsteinn eftir leik.

Það má líka sjá að það var mikið stuð í íslenska klefanum eftir leikinn en stelpurnar okkar dönsuðu af gleði eftir þennan langþráða sigur.

Hér fyrir neðan má sjá þetta skemmtilega myndband um þennan lífsnauðsynlega sigur fyrir stelpurnar okkar í generalprufunni fyrir EM í Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×