Kærleiksbomba frá GusGus Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 19. maí 2025 20:03 Tatjana Dís, Biggi Veira og Unnsteinn Manúel koma saman í sumarsmellinum Partýið er þú og ég. Skjáskot „Eins og kannski flestir Íslendingar er ég súperfan af GusGus og var ég því ekki lengi að svara kallinu þegar vinur minn Marteinn spurði hvort ég vildi gera lag með þeim,“ segir tónlistarkonan Tatjana Dís sem er hluti af GusGus ofur sumarsmellinum Partýið er þú og ég.
GusGus, Unnsteinn Manúel, Tatjana og Marteinn Hjartarson, betur þekktur sem Bngrboy koma saman að laginu. Hér má sjá myndbandið á streymisveitunni Youtube: Í fréttatilkynningu segir: „Þrátt fyrir margt ískyggilegt sem hægt er að hafa áhyggjur af er mikilvægt að halda samt í tilganginn með þessu öllu. Þess vegna hafa Gusgus liðar valið að varðveita kærleikann. Með góðri hjálp frá samherjum ástarinnar, Tatjönu, Unnsteini og Bngrboy er boðið upp á Diskópartý sem gott er að hafa nálægt hjartanu í sumarsólinni framundan.“ Klippa: Gusgus ft. Tatjana, Unnsteinn & Bngrboy - Partýið er þú og ég Blaðamaður náði tali af Tatjönu sem er í skýjunum með samstarfið. „Eins og kannski flestir Íslendingar er ég súperfan af GusGus og var ég því ekki lengi að svara kallinu þegar vinur minn Marteinn spurði hvort ég vildi gera lag með þeim. Að verja tíma í hljóðverinu hans Bigga var algjör draumur og ferlið einstaklega lærdómsríkt og gjöfult. Hann kenndi og sýndi mér svo margt sem ég verð ævinlega þakklát fyrir og mun taka sem veganesti út í lífið. Hann Unnsteinn er fagmaður fram í fingurgóma, í dansi, söng og leikstjórn og það er ekkert nema gaman að vinna með honum. Svo er ég held ég elsti aðdáandi Marteins en þetta er ekki síðasta lagið sem við gerum saman.“ Hér má svo hlusta á smellinn á streymisveitunni Spotify.
Tónlist Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira