„Verður stærsti dagur ævi minnar“ Sindri Sverrisson skrifar 17. maí 2025 12:32 Son Heung-Min og félagar í Tottenham hafa átt skelfilega leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og eru þar í 17. sæti en samt gæti leiktíðin endað með langþráðum titli og sæti í Meistaradeild Evrópu. Getty/Michael Steele Son Heung-min, fyrirliði Tottenham, viðurkennir að tímabilið sé búið að vera lélegt hjá liðinu en það breyti því ekki að hann geti tekið við stórum bikar á miðvikudagskvöld.
Tottenham mætir Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bilbao næsta miðvikudag. Liðin hafa bæði átt hreint út sagt hræðilega leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og eru þar rétt fyrir ofan fallsætin. Ljóst er að sigurliðið á miðvikudag slær met sem lægst skráða liðið í sinni landsdeild til að vinna Evrópudeildina. Tottenham tapaði 2-0 í gærkvöld gegn Aston Villa. „Þetta eru svekkjandi úrslit og tímabilið hefur verið mjög lélegt,“ sagði Son við BBC eftir tapið í gærkvöld. „En þegar allt kemur til alls þá getum við unnið titil og það er það eina sem við erum að hugsa um,“ sagði Son. Tottenham hefur ekki unnið titil í sautján ár, eða síðan liðið vann deildabikarinn árið 2008, og ekki unnið Evrópukeppni síðan árið 1984. Son, sem er 32 ára, hefur verið lykilmaður hjá Spurs í áratug en bíður enn eftir fyrsta titlinum með liðinu. „Miðvikudagurinn verður stærsti dagur ævi minnar. Þetta verður frábært. Við verðum spenntir og vonandi skráum við okkur í sögubækurnar,“ sagði Son. Úrslitaleikur Tottenham og Manchester United er á Vodafone Sport næsta miðvikudag klukkan 19.
Evrópudeild UEFA Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Fleiri fréttir Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Orri aftur með draumainnkomu Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Kristian Nökkvi á skotskónum í Hollandi Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Sjá meira