Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Sindri Sverrisson skrifar 16. maí 2025 18:09 Eggert Aron Guðmundsson kom til Brann í febrúar og gerði samning til ársins 2028. brann.no Íslendingar voru áberandi í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Eggert Aron Guðmundsson skoraði fyrir Brann í afar svekkjandi jafntefli við Sarpsborg, Logi Tómasson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Stefán Ingi Sigurðarson fékk að líta rauða spjaldið.
Lærisveinar Freys Alexanderssonar misstu af stigum í toppbaráttu deildarinnar þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli við Sarpsborg, þar sem jöfnunarmark gestanna kom á fimmtu mínútu uppbótartíma. Eggert hafði komið Brann í 1-0 strax á fjórðu mínútu leiksins og Brann komst aftur yfir, 2-1, á 59. mínútu. Skömmu síðar kom Sveinn Aron Guðjohnsen inn á hjá Sarpsborg sem freistaði þess að ná inn jöfnunarmarki og tókst það á síðustu stundu. Brann er því í 3. sæti með 17 stig en leik til góða á topplið Viking sem er með 20 stig, eftir 3-1 sigur á Sandefjord sem missti Stefán Inga af velli með rautt spjald í lokin. Vítaspyrna var þá einnig dæmd sem Viking skoraði úr og innsiglaði sigurinn. Hilmir Rafn Mikaelsson var á varamannabekknum hjá Viking. Ísak Snær Þorvaldsson var einnig á bekknum hjá Rosenborg sem vann 1-0 gegn botnliði Haugesund og er í 2. sæti deildarinnar, stigi fyrir ofan Brann. Strömsgodset er í 12. sæti með sex stig úr sjö leikjum, eftir 2-0 tap á heimavelli gegn Bryne. Seinna markið var sjálfsmark Loga Tómassonar sem samkvæmt textalýsingu Nettavisen frá leiknum var óheppinn þegar hann skallaði boltann í eigið net.
Norski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Sjá meira