Íslensku stelpurnar redduðu málunum fyrir Kristianstad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2025 14:55 Alexandra Jóhannsdóttir tryggði Kristianstad þrjú stig í dag. Getty/Alex Nicodim/ Kristianstad vann 3-2 endurkomusigur á Vittsjö í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag þar sem íslenskar landsliðskonur lönduðu sigrinum með mörkum í seinni hálfleik.
Vittsjö var 2-1 yfir í leiknum þegar klukkutími var liðinn af leiknum. Katla Tryggvadóttir var með fyrirliðabandið hjá Kristianstad og hún jafnaði metin á 66. mínútu. Þremur mínútum síðar kom Alexandra Jóhannsdóttir liði Kristianstad yfir þegar hún skallaði boltann í markið eftir hornspyrnu Viktoriu Persson. Beata Olsson kom Kristianstad í 1-0 á 26. mínútu en gestirnir frá Vittsjö svöruðu með mörkum þeirra Önnu Haddock og Sofie Rewucha. Katla og Alexandra voru báðar í byrjunarliðinu en Guðný Árnadóttir kom inn á sem varamaður á milli markanna og nældi sér í gult spjald undir lokin. Þetta var fyrsta deildarmark Kötlu á tímabilinu en annað deildarmarkið hjá Alexöndru. Guðrún Arnardóttir var með fyrirliðabandið hjá Rosengård sem vann 2-1 sigur á Norrköping. Hanna Andersson kom Rosengård yfir á 27. mínútu en Norrköping jafnaði með sjálfsmarki í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Staðan var 1-1 fram á 74. mínútu þegar Emilia Larsson kom Rosengård aftur yfir. Það reyndist vera sigurmarkið í leiknum. María Ólafsdóttir Gros og félagar í Linköping töpuðu 2-1 á heimavelli á móti Djurgården. María nældi sér í gult spjald í leiknum en liðið skoraði jöfnunarmark sjö mínútum fyrir leikslok. Það dugði þó ekki því gestirnir tryggðu sér sigurinn á þriðju mínútu í uppbótatima. Rosengård er í fjórða sæti deildarinnar með þrettán stig, Kristianstad er í fimmta sæti með þremur stigum minna en Linköping er svo í tólfta sætinu.
Sænski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira