Hákon með mark og stoðsendingu í sigri Lille Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2025 14:55 Hákon Arnar Haraldsson var allt í öllu í sigri Lille í frönsku deildinni í dag. Getty/Hesham Elsherif Hákon Arnar Haraldsson átti mjög flottan leik í dag í góðum útisigri Lille í frönsku deildinni.
Lille vann á 2-0 sigur á útivelli á móti Angers en þessi þrjú stig komu Hákoni og félögum upp í annað sætið deildarinnar. Þeir eiga þó enga möguleika á því að ná Paris Saint Germain sem er með 22 stiga forystu á toppnum. Hákon lagði upp fyrsta markið og kom liðinu síðan í 2-0 í síðari hálfleiknum. Liðið lék manni færri síðustu 23 mínúturnar eftir að Bafodé Diakité fékk sitt annað gula spjald. Alexsandro Ribeiro kom Lille í 1-0 í uppbótatíma fyrri hálfleiks þegar hann skoraði með skalla eftir sendingu frá Hákoni. Hákon skoraði síðan sjálfur eftir aðeins fimm mínútna leik í seinni hálfleiknum eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Chuba Akpom. Hákon skoraði með vinstri fótar skoti úr teignum. Þetta var fimmta deildarmark Hákonar á tímabilinu en hann hefur einnig lagt upp þrjú mörk fyrir félaga sína.
Franski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Enski boltinn Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Fleiri fréttir Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sjá meira