Glódís Perla innsiglaði sigur og meistaratitil Bayern Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2025 13:57 Glódís Perla Viggósdóttir fagnar marki sínu fyrir Bayern München í dag ásamt liðsfélögum sínum Pernille Harder og Jovanu Damnjanovic. Getty/Alexander Hassenstein Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var á skotskónum í dag þegar Bayern München tryggði sér þýska meistaratitilinn.
Bayern vann þá 3-1 sigur á Freiburg á heimavelli og er fyrir vikið komið með ellefu stiga forystu á toppi deildarinnar. Wolfsburg, sem er i öðru sæti, á leik inni en á ekki lengur möguleika á að ná efsta sætinu. Glódís Perla byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður á 75. mínútu. Fjórum mínútum síðar hafði hún komið Bayern liðinu í 3-1 og innsiglað sigurinn. Lea Schüller kom Bayern í 1-0 á 20. mínútu en Svenja Fölmli jafnaði metin fyrir Freiburg á 28. mínútu. Hin danska Pernille Harder kom Bæjurum aftur yfir á 67. mínútu og síðan var komið að frábærri innkomu okkar konu. Þetta var annað deildarmark Glódísar á tímabilinu en það fyrsta síðan í nóvember. Hún hefur verið meidd en það er gleðiefni að sjá hana snúa aftur inn á völlinn og kórónaða það með því að innsigla meistaratitilinn. Þetta er þriðja árið í röð sem Bayern verður þýskur meistari.
Þýski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Enski boltinn „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Handbolti Fleiri fréttir Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sjá meira