Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. apríl 2025 12:26 Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður Eflingar. Vísir/Vilhelm Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fór yfir ævi sína og störf í ítarlegu viðtali við Auðun Georg Ólafsson. Þar segir hún frá uppeldi sínu í Breiðholtinu, unglingsárunum og hvernig hún tók ung við móðurhlutverkinu.
Sólveig Anna, eða Solla eins og hún er oft kölluð, er alin upp í Breiðholtinu af foreldrum sínum Jóni Múla Árnasyni og Ragnheiði Ástu Pétursdóttur. „Foreldrar mínir voru mjög trúlaus en þau lögðu mikið upp úr hefðum og gildum. Þessar kristnu hátíðir voru teknar mjög alvarlega heima hjá mér, jólin voru mikill hátíðartími og þau lögðu nú alltaf mikla áherslu á að kenna mér um þennan grundvallarboðskap kristininnar,“ segir Sólveig Anna. „Mér ávallt sögð sagan af langalangömmu minni sem að grét af því að það var það sem maður gerði á föstudaginn langa. Þá gat maður farið í gegnum þann harm sem að maður hefði upplifað og syrgt, maður gat verið sorgbitinn.“ Sólveig Anna og Auðun Georg ræddu saman um líf hennar og störf.Vísir Móðir hennar spilaði alltaf Jesú grætur heimar hlær á píanóið um páskana. „Það var enginn harmur, það var verið að reyna að útskýra og kenna um hvað þessir hlutir snerust,“ segir Sólveig. Söngvari The Cure tískuhetjan Sólveig Anna lýsir sér sem stilltu barni og var ávallt með nefið ofan í einhverri ævintýrabók. Hún tók sérstaklega fram bókina um Emil eftir Astrid Lindgren. „Þegar ég var á fimmta ári þá kallaði ég mig Emil og neitaði að svara öðru.“ Henni fannst leiðinlegt í skóla og vildi miklu frekar vera heima að lesa heldur en að mæta. Á unglingsaldri gekk hún svo í Réttarholtsskóla þar sem vinkonuhópurinn stóð upp úr. „Ég hafði ekki metnað fyrir náminu, ég var ekki með sérstaklega góða mætingu en ég átti góðan vinkonuhóp sem ég er enn í miklum tengslum við,“ segir Sólveig. „Ég var þarna farin að aðhyllast mjög sérstakan stíl í klæðaburði og hafði greinilega, þegar ég hugsa til baka, mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að ég væri svolítið spes týpa.“ Robert Smith, söngvari The Cure og tískuhetja Sólveigar Önnu á unglingsárunum.GETTY Sólveig lýsir klæðaburðinum sem skrautlegum en hennar helstu tískuhetjur voru Robert Smith, söngvari hljómsveitarinnar The Cure og Tim Curry sem Frank-N-Furter í Rocky Horror Picture Show. „Ég var mjög föl, með tætt úfið svart hár og mjög mikið máluð, mjög mikil augnmálning og ég vildi einhvern veginn tjá mig með þessum hætti. Með þessum hætti hélt ég að ég væri að gefa til kynna að ég væri sérstök týpa,“ segir Sólveig. Á þeim tíma hafi þess konar klæðaburður ekki verið kallaður goth en Sólveig segist frekar hafa hallast að indie rokk tónlist á þessum tíma. Þrátt fyrir indie rokkið var söngvarinn Prince aðalmaðurinn í lífi Sólveigar og vinkvenna hennar lengi vel „Við dáðum hann og dýrkuðum.“ Reynir að kenna börnunum sín gildi Sólveig Anna tók við móðurhlutverkinu ung að aldri þegar hún eignaðist son sinni Jón Múla. „Ég verð ung móðir og það er það besta sem hefur gerst fyrir mig. Ég var 21 árs þegar sonur minn fæðist, á tvo mánuði í að verða 22 ára. Þarna er ég voðalega týnd og þarna fæ ég barnið í hendurnar og loksins upplifi ég rosalega ábyrgðartilfinningu sem ég hafði ekki upplifað áður,“ segir hún. „Ég fer af djamminu í móðurhlutverkið og það voru mjög góð skipti, ég leit aldrei til baka og var rosa ánægð með það. Það vöknuðu strax miklar og sterkar móðurtilfinningar og ég naut þess að vera með barninu.“ Þremur árum síðar eignaðist hún dótturina Guðnýju Margréti. Sólveig segir að hún og maðurinn hennar, Magnús Sveinn Helgason, hafi reynt að ala börnin upp eftir sömu gildum og hún upplifði í barnæsku. „Uppeldið sem að ég fékk markast af því að þarna er maður sem er fæddur 1921 og fullorðið fólk. Þetta er fólk sem að sér heimsstyrjaldir og upplifir svo ótrúlega mikla heimssögulega atburði.“ Það hafi því verið aðrir tímar sem foreldrar hennar upplifðu heldur en hún sjálf. „Við höfum reynt að útskýra fyrir þeim hver gildin okkar séu en á sama tíma hefur þetta verið minna markvisst.“ Þau eru kapítalistar kannski? „Nei, nei alls ekki. Róa sig.“ Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Páskar Bylgjan Börn og uppeldi Stéttarfélög Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Sjá meira