Sjóðheitur Hilmir skoraði í fyrsta leik fyrir Viking Sindri Sverrisson skrifar 30. mars 2025 14:38 Hilmir Rafn Mikaelsson er strax farinn að láta til sín taka hjá Viking. Viking FK Þrátt fyrir að Viking hefði verið búið að missa mann af velli með rautt spjald náði Hilmir Rafn Mikaelsson að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið í dag, strax í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Markið má sjá á vef TV 2 með því að smella hér en Hilmir skoraði það af stuttu færi eftir undirbúning Edvin Austbö. Það dugði þó skammt því Viking tapaði leiknum, gegn nýliðum Vålerenga, 3-1. Hilmir skoraði jöfnunarmarkið á 63. mínútu, skömmu eftir að Martin Roseth hafði fengið sitt annað gula spjald og þar með rautt. Fyrirliðinn Henrik Björdal kom Vålerenga hins vegar yfir aftur strax á 66. mínútu og skoraði svo sitt annað mark og lokamark leiksins á 79. mínútu. Hilmir, sem er 21 árs, þarf því að bíða eftir fyrsta sigrinum með Viking, eftir að hafa áður spilað með Kristiansund og Tromsö í norsku deildinni, sem lánsmaður frá Venezia á Ítalíu. Hann var keyptur til Viking í vetur. Með marki sínu í dag hefur Hilmir skorað í þremur leikjum á tíu dögum því í landsleikjahléinu skoraði hann í báðum leikjum U21-landsliðsins á Spáni, í 3-0 sigri gegn Ungverjum og 6-1 sigri gegn Skotum.
Norski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Sjá meira