Blóðguð Glódís Perla fagnaði sigri á móti Sveindísi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2025 17:53 Glódís Perla Viggósdóttir fékk höfuðhögg og skurð í upphafi leiks og það blæddi vel úr henni. Getty/Daniel Löb Bayern München hafði betur á móti VfL Wolfsburg í toppslag þýska kvennafótboltans í kvöld en þarna voru líka tveir lykilmenn íslenska kvennalandsliðsins að mætast.
Glódía Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München unnu leikinn 3-1. Fyrir vikið er Bayern komið með sex stiga forskot á toppnum en Sveindís Jane Jónsdóttir og félagar í Wolfsburg eru í öðru til þriðja sæti með Eintracht Frankfurt. Danska landsliðskonan Pernille Harder var öðrum fremur maður leiksins en hún skoraði tvívegis. Lea Schüller skoraði þriðja mark Bæjara og kom liðinu þá í 3-0. Fyrra mark Harder kom á þrettándu mínútu en hitt markið á annarri mínútu síðari hálfleiks. Mark Schüller kom á 69. mínútu. Glódís Perla hefur verið tæp og missti af leik á dögunum. Hún byrjaði leikinn í kvöld en var tekin af velli á 53. mínútu þegar Bayern var komið tveimur mörkum yfir. Glódís Perla fékk höfuðhögg og skurð í upphafi leiks þegar hún og markvörður liðsins skullu saman. Glódís spilaði eftir það með svaka umbúðir á höfðinu en það blæddi heilmikið úr sárinu. Sveindís Jane Jónsdóttir byrjaði á varamannabekknum í dag en kom inn á á 68. mínútu. Eftir að hún kom inn á völlinn þá minnkaði Lineth Beerensteyn muninn í 3-1 á 75. mínútu. Sveindís sjálf fékk gult spjald þegar hún var nýkomin inn á völlinn á 71. mínútu.
Þýski boltinn Mest lesið Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Fótbolti Íslandsmetin falla í bunkum á Íslandsmótinu í sundi Sport Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Fótbolti Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Körfubolti „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Formúla 1 Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Handbolti Sanngjarn heimasigur Enski boltinn „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fleiri fréttir Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Rekinn aðeins sex mánuðum eftir að hann yfirgaf Liverpool Mamma og pabbi í stúkunni þegar Emelía skoraði þrennuna í bikarnum Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Sjá meira