Oliver kældur eftir Mateta-atvikið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. mars 2025 16:46 Michael Oliver í skjánum. Hann hefur verið mikið milli tannnana á fólki undanfarnar vikur. ap/Ian Walton Dómarinn Michael Oliver mun ekkert dæma í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hann gerði sig sekan um mistök í bikarleik Crystal Palace og Millwall um helgina.
Liam Roberts, markvörður Millwall, var rekinn af velli snemma leiks vegna grófs brots á Jean-Philippe Mateta, framherja Palace. Roberts óð út úr marki sínu, sparkaði boltanum í burtu en fór svo með sólann í andlitið á Mateta. Oliver rak Roberts ekki af velli fyrr en VAR-dómarinn blandaði sér í málið. Oliver var sendur til að skoða atvikið á skjá á hliðarlínunni og ákvað þá að gefa Roberts rauða spjaldið. Oliver var víða gagnrýndur fyrir að hafa ekki rekið Roberts strax af velli og hann fær ekki verkefni í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hann dæmir hins vegar stórleik Bayern München og Bayer Leverkusen í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hinn fertugi Oliver hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu, meðal annars eftir að hann rak Arsenal-manninn unga Myles Lewis-Skelly út af í leik gegn Wolves í lok janúar. Oliver bárust morðhótanir eftir leikinn. Hann var einnig gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í borgarslag Everton og Liverpool í síðasta mánuði. Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir mótmæli eftir leikinn á Goodison Park.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira