Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2025 18:01 Bobby Portis verður fjarri góðu gamni hjá Milwaukee Bucks á næstunni. getty/Stacy Revere NBA hefur dæmt Bobby Portis, leikmann Milwaukee Bucks, í 25 leikja bann fyrir að brjóta lyfjareglur deildarinnar. Nafnaruglingur varð til þess að hann féll á lyfjaprófi.
Verkjalyfið Tramadol fannst í sýni Portis. Samkvæmt umboðsmanni hans tók leikmaðurinn lyfið inn fyrir mistök. Hann ætlaði að taka annað verkjalyf með svipað nafn, Toradol, en aðstoðarmaður hans lét hann hafa vitlaust lyf. Leikmönnum NBA er heimilt að taka Toradol en ekki Tramadol sem er nýkomið á bannlista. Portis ætlar ekki að áfrýja úrskurði NBA. Portis verður laus úr banninu 8. apríl, þegar fjórir leikir eru eftir af deildarkeppninni. Portis er lykilmaður í liði Milwaukee sem er í 5. sæti Austurdeildarinnar með þrjátíu sigra og 24 töp. Á þessu tímabili er hann með 13,7 stig og 8,3 fráköst að meðaltali í leik. Portis, sem varð þrítugur fyrr í mánuðinum, hefur leikið í NBA síðan 2015. Hann gekk í raðir Milwaukee 2020 og varð meistari með liðinu ári seinna. Hann hefur einnig leikið með Chicago Bulls, Washington Wizards og New York Knicks.
NBA Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina Sport Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Fleiri fréttir Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Sjá meira