Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. desember 2024 22:46 Dele Alli hefur ekki spilað síðan í febrúar 2023. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Enski knattspyrnumaðurinn Dele Alli hefur yfirgefið úrvalsdeildarfélagið að Everton að fullu. Samningur hans við félagið rann út í sumar en Alli hefur verið leyft að æfa með liðinu síðan þá. Hann segir hlutina ekki hafa farið eins vel og hann vildi.
Dele Alli samdi við Everton árið 2022 eftir sjö ára dvöl hjá Tottenham, hvar hann skaust upp á stjörnuhimininn en hrapaði jafn hratt til jarðar. Hann fór síðan á lán til Besiktas en hefur ekki spilað keppnisleik síðan í febrúar 2023. Í fyrra opnaði hann sig einnig um erfiðleika sem hafa elt hann frá æsku, misnotkun sem hann varð fyrir sem barn og aðstæðurnar sem leiddu til þess að hann ánetjaðist svefnlyfjum. Honum tókst ekki að koma sér í nógu gott stand hjá Everton og segir tímabært að hefja nýjan kafla á nýju ári 2025. Í kveðju sinni á Instagram þakkar hann félaginu fyrir allt sem það gaf honum. Þetta hafi verið erfiður tími og hlutirnir hafi ekki gengið eins vel og hann vildi. View this post on Instagram A post shared by Dele (@dele) Hvað tekur við hjá Dele Alli er enn óljóst. The Athletic greindi frá því á mánudag að Cesc Fabregas, þjálfari ítalska úrvalsdeildarliðsins Como, hafi boðið honum á æfingar en eingöngu „til þess að koma sér í leikform“.
Enski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira