„Risa tilkynning“ Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 4. desember 2024 09:18 Kristín Péturs og Þorvar Bjarmi eiga von á dreng. Kristín Pétursdóttir, leikkona, flugfreyja og áhrifavaldur og kærastinn hennar, Þorvar Bjarmi Harðarson handboltadómari, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Kristín einn dreng.
Parið tilkynnir gleðitíðindin í færslu á Insgragram. Þar má sjá fallega mynd af fjölskyldunni með sónarmynd í hönd. „Risa tilkynning - lítill bróðir í bumbu,“ skrifar Kristín við færsluna. View this post on Instagram A post shared by Kristín Pétursdóttir (@kristinpeturs) Kristín og Þorvar opinberuðu samband sitt í fyrrasumar. Sjá einnig: Kristín Péturs fann ástina í faðmi handboltadómara. Kristín var upphaflega hluti af LXS áhrifavaldahópnum, en hún ákvað að taka ekki þátt í raunveruleikaþættinum LXS, sem hóf göngu sína á Stöð 2 árið 2022. Leikstjóri ráðlagði henni að minnka viðveru sína á samfélagsmiðlum ef hún vildi ná árangri sem leikkona og því tók hún þá ákvörðun að draga sig úr hópnum. Kristín var snemma komin með leiklistaráhugann og lék í sinnu fyrstu kvikmynd í menntaskóla. Hún ákvað að sækja svo um í Listaháskóla Íslands á lokaárinu í Flensborg og komst inn í leiklistarnámið í fyrstu tilraun. „Ég heyrði einu sinni einn leikstjóra segja við mig á djamminu að ég þyrfti nú að fara að fjarlægja mig þessu samfélagsmiðladæmi, þessum áhrifavaldastimpli og öllu þessu. Hann myndi persónulega ekki ráða mig í hlutverk ef að ég væri þessi týpa,“ sagði Kristín í samtali við Sylvíu Rut í Einkalífinu árið 2022. Í þættinum hér fyrir neðan talar Kristín einnig um leiklistina, samfélagsmiðlana, fjölskyldu sína, heimilið, ferilinn, af hverju hún var klippt út úr LXS raunveruleikaþáttunum og margt fleira.
Tímamót Barnalán Ástin og lífið Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira