Hiti að sex stigum Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2024 07:08 Það mun hvessa og bæta í skúrir á á morgun. Vísir/Einar Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestanátt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, í dag. Spáð er dálitlum skúrum eða éljum, en þurrt að kalla á austanverðu landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði almennt á bilinu tvö til sex stig, en nálægt frostmarki austantil fram eftir degi. „Hvessir og bætir í skúrir á morgun, 10-18 m/s um hádegi. Áfram þurrt austanlands. Hiti 2 til 6 stig. Vestlægari og kólnar með éljum norðvestantil um kvöldið. Gengur í norðan og norðaustan 13-20 með sjókomu á Vestfjörðum aðfaranótt fimmtudags en dregur aðeins úr vindi þar í morgunsárið. Norðan og norðaustan 10-18 á fimmtudag. Snjókoma um mest allt land, en slydda í fyrstu suðaustanlands. Þurrt að mestu suðvestantil. Kólnar í veðri, frost 0 til 11 stig um kvöldið. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Á föstudag verður norðaustan 8-15 m/s og bjart með köflum, en hvassari með snjókomu suðaustantil. Kólnar enn með talsverðu frosti um mest allt land, einkum norðanlands. Á laugardag og sunnudag er útlit fyrir að lægð á norðausturleið fari framhjá suðaustur af landinu en enn er óvíst hversu nærri landinu þessi lægð kemur. Ef leið hennar er meira til austurs, þá sleppum við við mestu ofankomuna, en ef leið hennar leitar meira til vesturs, þá má reikna með snjókomu og hvassviðri um mest allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar .
Veður Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Fleiri fréttir Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Sjá meira