Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2024 15:02 Ed Sheeran á leik Ipswich Town og Manchester United á Portman Road. getty/David Davies Tónlistarmaðurinnn Ed Sheeran var vinsamlegast beðinn um að fara eftir að hafa ruðst inn í viðtal við Rúben Amorim, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir leikinn gegn Ipswich Town í gær.
Amorim stýrði United í fyrsta skipti þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Ipswich á Portman Road. Marcus Rashford kom Rauðu djöflunum yfir eftir áttatíu sekúndur en Omari Hutchinson jafnaði fyrir nýliðana skömmu fyrir hálfleik. Eftir leikinn fór Amorim í viðtal hjá Sky Sports. Kelly Cates, Roy Keane, Izzy Christiansen og Jamie Redknapp voru þar en allt í einu birtist Sheeran í Ipswich jakka. Tónlistarmaðurinn er harður stuðningsmaður Ipswich og á 1,4 prósenta hlut í félaginu. Cates ávarpaði Sheeran sem vinkaði Amorim og faðmaði svo Redknapp. Hann bað hann svo kurteislega að hafa sig á brott svo hægt væri að taka viðtalið við Amorim. Sheeran hefur nú beðist afsökunar á því að hafa mögulega móðgað Amorim. Hann segist ekki hafa vitað að hann væri í viðtali og hafi einungis ætlað að heilsa upp á Redknapp. Ipswich hefur náð í fjögur stig í síðustu tveimur leikjum, gegn Tottenham og United. Ipswich er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með níu stig eftir tólf leiki. United er í 12. sætinu með sextán stig.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira