Áfram kalt og bætir í vind á morgun Atli Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2024 07:04 Frost á landinu verður á bilinu null til ellefu stig, kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og víðáttumikil lægð yfir Skandinavíu stýra veðrinu í dag þar sem búast má við norðaustlægri átt, víða stinningsgolu eða strekkingi og lítilsháttar éljum á Norður- og Austurlandi. Það mun svo bæta þar í ofankomu seint í dag.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt þurrt og bjart sunnan- og vestanlands.Frost á landinu verður á bilinu null til ellefu stig, kaldast inn til landsins. „Á morgun veldur djúp og kröpp lægð suður í hafi norðaustan strekkingi eða allhvössum vindi á landinu, en hvassviðri eða stormi við suðausturströndina. Yfirleitt léttskýjað, en hægari og stöku él norðaustantil,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vaxandi norðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis, en 15-23 við suðausturströndina. Víða bjart, en hægari og lítilsháttar él norðaustantil. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum. Á sunnudag: Norðaustan 10-18, en stormur eða rok á Suðausturlandi. Dálítil snjókoma fyrir austan, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðlæg átt 8-13, en hægari undir kvöld. Lítilsháttar él, en þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Áfram kalt í veðri. Á þriðjudag: Snýst í suðvestan 5-13 og lítilsháttar él eða slydduél seinnipartinn, en yfirleitt bjart fyrir austan. Hlýnar í veðri. Á miðvikudag: Suðvestan 8-13 og skúrir eða él, en þurrt að kalla á Austurlandi. Hiti 0 til 4 stig, en frost 0 til 5 stig fyrir austan. Á fimmtudag: Útlit fyrir ákveðna norðaustlæga átt með snjókomu eða slyddu og kólnandi veðri.
Veður Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Erlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Fleiri fréttir Hvassir vindstrengir með suðausturströndinni Hvassir vindstrengir og kraparegn með köflum Þurrt um vestanvert landið en dálítil úrkoma austantil Þungbúið austantil en annars þurrt og nokkuð bjart Skýjað með köflum og sums staðar úrkoma Norðlæg átt og lengst af þurrt suðvestantil Þykknar upp sunnan heiða undir kvöld Hvassast á Vestfjörðum Léttir til suðvestanlands Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Hvasst, hlýtt og von á asahláku eða glerhálku „Þetta verður allt saman stórvarasamt í fyrramálið“ Gular veðurviðvaranir víða um land Frostið náði næstum 20 stigum á Sandskeiði Djúp lægð nálgast landið úr suðri Nýtt snjódýptarmet í Reykjavík í október Hlýni á föstudag og snjórinn geti horfið í næstu viku Appelsínugular viðvaranir orðnar að gulum Miklar tafir hjá strætó og vagnar fastir Allur floti Vegagerðar úti að ryðja snjó Veðurvaktin: Allt á kafi í snjó á metdegi Mildari spá í kortunum Gular viðvaranir vegna snjókomunnar suðvestantil Um sautján stiga frost í Skagafirði í nótt Frost komst í fjórtán stig í nótt Norðanáttin gengur niður Klukkustunda bið eftir dekkjaskiptum í vetrarparadísinni Stormur eða hvassviðri suðaustantil Gul viðvörun á landinu sunnan- og austanverðu Svöl norðanátt og hálka á vegum Sjá meira