Fyrsta félagið í áratug sem vinnur hjá báðum kynjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2024 14:32 Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði karlaliðs Breiðabliks, og Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði kvennaliðs Breiðabliks, lyftu bæði Íslandsmeistaraskildinum í ár. Vísir/Anton/Diego Bæði Breiðabliksliðin eru Íslandsmeistari í fótbolta því í gær lék karlaliðið eftir afrek kvennaliðsins frá því fyrr í haust.
Bæði liðin þurftu að fara á útivöll í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn og bæði Blikaliðin sýndu þar mikinn styrk og tryggðu sér titilinn. Kvennaliðið gerði markalaust jafntefli á útivelli Íslandsmeistara Vals, sem dugði, og karlaliðið vann 3-0 sigur á Íslandsmeisturunum Víkings. Blikaliðin náðu því bókstaflega í Íslandsmeistaraskjöldinn á heimavöll ríkjandi Íslandsmeistara. Breiðablik er fyrsta félagið í tíu ár sem nær að verða Íslandsmeistari hjá körlum og konum. Það gerðist síðast þegar Stjarnan vann tvöfalt haustið 2014. Konurnar unnu titilinn sinn í næstsíðustu umferð fyrir tíu árum en þær unnu deildina þá með átta stigum. Karlarnir unnu hins vegar 2-1 sigur á FH í hreinum úrslitaleik í Kaplakrika það sama haust eftir mikla dramatík en Stjörnuliðið tapaði ekki leik allt tímabilið. Frá því að keppt var fyrst um Íslandsmeistaratitil kvenna árið 1972 hefur það átta sinnum gerst að sama félag vinni Íslandsmeistaratitilinn hjá báðum kynjum. Það gerðist líka árin 2007 (Valur), 2003 (KR), 2002 (KR), 1999 (KR), 1984 (ÍA) og 1978 (Valur).
Breiðablik Besta deild karla Besta deild kvenna Mest lesið Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ Körfubolti Kristín á sjötugsaldri og enn að bæta sig: „Amma Iron man“ Sport Einmanalegt hjá Salah í ræktinni Enski boltinn Ofsótt af milljarðamæringi Enski boltinn „Ég er svona hálfklökkur, kannski meira en hálfklökkur“ Sport Einvígi Mbappé og Haaland í hættu Fótbolti Alisson um Salah: „Afleiðing þess sem hann gerði“ Enski boltinn Carragher: „Ef Salah reynir að henda félaginu mínu undir rútuna veð ég í hann“ Enski boltinn Brassar að gera sömu mistökin og áður með að fá ekki leik við Ísland Fótbolti „Hinn íslenski Harry Kane“ Fótbolti Fleiri fréttir Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Sjá meira