Rigning og súld í dag Lovísa Arnardóttir skrifar 19. október 2024 07:24 Það rignir í dag en lægir líklega síðdegis eða í kvöld. Vísir/Vilhelm Lægð yfir Vesturlandi veldur suðlægum áttum á landinu í dag. Lægðin fer hægt norður og grynnist. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að hún fari svo í norðaustanátt fram eftir degi. Það verður því rigning og súld í dag en bjart með köflum á Norðausturlandi. Hiti verður líklega á bilinu 2 til 8 stig. „
Í fyrramálið verðum við á milli lægða og því fremur hæg breytileg átt með vætu víðast hvar en seinnipartinn á morgun nálgast skil úr suðri og þá bætir í úrkomu á austanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á vef Vegagerðar má sjá að nokkuð greiðfært er um landið en fjallvegir lokaðir og upp á hálendi. Snjóflóðahætta er við Fagradal á Austurlandi og vegavinna víða. Nánar um veður á vef Veðurstofunnar og færð vega á vef Vegagerðarinnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil, en annars hægari breytileg átt. Stöku skúrir eða él vestantil, en þurrt og sums staðar bjart á austanverðu landinu, en þykknar upp síðdegis með rigningu austast. Hiti 2 til 7 stig, en nálægt frostmarki norðanlands. Á mánudag: Norðaustan 5-10 m/s og él norðvestantil, en hægari og skúrir eða slydduél sunnan- og austanlands. Hiti í kringum frostmark, en að 6 stigum syðst. Á þriðjudag: Norðvestan 5-13 m/s, hvassast við norðausturströndina. Él á Norður- og Austurlandi framan af degi, en annars þurrt að kalla. Lægir og léttir víða til síðdegis, en stöku él við vesturströndina. Kólnandi. Vaxandi austanátt um kvöldið með úrkomu og hlýnandi veðri. Á miðvikudag: Ákveðin suðlæg átt með rigningu, en norðaustanátt norðvestantil og á annesjum norðaustanlands með slyddu. Hiti 0 til 9 stig, hlýjast syðst. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlæga átt með éljum fyrir norðan, en skúrir sunnan heiða. Á föstudag: Austlæg átt og rigning eða slydda en stöku él norðantil.
Veður Færð á vegum Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin Erlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira