Dálítil rigning sunnan- og vestanlands Atli Ísleifsson skrifar 17. október 2024 07:09 Gera má ráð fyrir norðaustlægri átt í dag og víða dálítilli rigningu. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu og skýjuðu, en átta til þrettán metrum á norðvestanverðu landinu.
Spáð er dálítilli rigningu eða súld sunnan- og vestanlands, en lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðvestantil. Lengst af þurrt á Norðausturlandi. Hiti verður víða nálægt frostmarki, en fimm til tíu stig fyrir sunnan. „Á morgun verður norðaustan 8-15 m/s og sums staðar dálítil væta, hvassast norðvestan- og suðaustantil. Fer að rigna síðdegis og bætir í vind á austanverðu landinu, suðaustan 15-23 m/s undir kvöld. Hiti 5 til 10 stig. Á laugardag verður suðvestanátt og skúrir, en léttir til á Norðausturlandi. Hiti 4 til 8 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austan og norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 á Vestfjörðum. Víða dálítil rigning, en styttir upp á Suður- og Vesturlandi eftir hádegi. Gengur í norðan 13-18 og bætir í rigningu á austanverðu landinu seinnipartinn. Hiti 3 til 10 stig, mildast sunnanlands. Á laugardag: Norðan 10-15 á norðvestanverðu landinu með slyddu eða snjókomu og hita um og undir frostmarki. Hægari breytileg átt sunnan- og austanlands með dálitlum skúrum og hita 1 til 6 stig. Á sunnudag: Norðlæg átt 5-13. Rigning eða snjókoma með köflum víða um land, en úrkomuminna vestanlands. Hita í kringum frostmark, en allt að 6 stigum sunnanlands. Á mánudag: Norðan 8-13 og dálítil rigning eða snjókomu í flestum landshlutum, en bætir í snjókomu norðaustanlands undir kvöld. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Minnkandi norðvestanátt og styttir upp á austanverðu landinu, annars breytileg átt og bjart að mestu. Vaxandi suðaustanátt undir kvöld og fer að rigna sunnanlands. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 4 stig sunnanlands. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga átt. Rigning á sunnan- og vestanverðu landinu og snjókoma á Vestfjörðum, en léttir til norðaustanlands. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Innlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Innlent Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Erlent Brosið fer ekki af Hrunamönnum Innlent Fleiri fréttir Hvassir vindstrengir og kraparegn með köflum Þurrt um vestanvert landið en dálítil úrkoma austantil Þungbúið austantil en annars þurrt og nokkuð bjart Skýjað með köflum og sums staðar úrkoma Norðlæg átt og lengst af þurrt suðvestantil Þykknar upp sunnan heiða undir kvöld Hvassast á Vestfjörðum Léttir til suðvestanlands Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Hvasst, hlýtt og von á asahláku eða glerhálku „Þetta verður allt saman stórvarasamt í fyrramálið“ Gular veðurviðvaranir víða um land Frostið náði næstum 20 stigum á Sandskeiði Djúp lægð nálgast landið úr suðri Nýtt snjódýptarmet í Reykjavík í október Hlýni á föstudag og snjórinn geti horfið í næstu viku Appelsínugular viðvaranir orðnar að gulum Miklar tafir hjá strætó og vagnar fastir Allur floti Vegagerðar úti að ryðja snjó Veðurvaktin: Allt á kafi í snjó á metdegi Mildari spá í kortunum Gular viðvaranir vegna snjókomunnar suðvestantil Um sautján stiga frost í Skagafirði í nótt Frost komst í fjórtán stig í nótt Norðanáttin gengur niður Klukkustunda bið eftir dekkjaskiptum í vetrarparadísinni Stormur eða hvassviðri suðaustantil Gul viðvörun á landinu sunnan- og austanverðu Svöl norðanátt og hálka á vegum Stefnir í fyrstu hálku haustsins á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira