Arnór Sveinn hættir að spila og verður aðstoðarþjálfari Breiðabliks Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2024 16:02 Arnór Sveinn Aðalsteinsson ásamt Halldóri Árnasyni, þjálfara karlaliðs Breiðabliks. breiðablik Löngum leikmannaferli Arnórs Sveins Aðalsteinsson lýkur í haust. Hann fer í nýtt hlutverk hjá Breiðabliki en hann hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs félagsins.
Arnór Sveinn er uppalinn hjá Breiðabliki, varð bikarmeistari með liðinu 2009, Íslandsmeistari 2010 og sneri aftur í Kópavoginn fyrir síðasta tímabil. Hann hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í haust en hann gæti lokið leikmannaferlinum með því að verða Íslandsmeistari með Breiðabliki. Blikar eru í 2. sæti Bestu deildarinnar með jafn mörg stig og topplið Víkinga en liðin mætast í lokaumferðinni. Eftir tímabilið verða breytingar á þjálfarateymi karlaliðs Breiðabliks. Eyjólfur Héðinsson hættir sem aðstoðarþjálfari en hann hefur verið ráðinn deildarstjóri meistaraflokka félagsins. Við starfi aðstoðarþjálfara tekur Arnór Sveinn eins og fyrr sagði. Hann verður aðalþjálfaranum Halldóri Árnasyni til halds og trausts. „Ég er gríðarlega stoltur af mínum tíma sem leikmaður og þeim þroska sem ég hef öðlast en nú finn ég að tímapunkturinn er réttur að stíga inní nýtt hlutverk. Ég hlakka til að vinna með Halldóri og teyminu í heild, strákana þekki ég vel og svo eru forréttindi að fá að starfa hjá mínu uppeldisfélagi,“ sagði Arnór Sveinn í tilkynningu frá Breiðabliki. Arnór Sveinn, sem er 38 ára, lék sinn fyrsta leik með Breiðabliki 2003 og hefur leikið tæplega þrjú hundruð leiki fyrir félagið. Hann lék með Hønefoss í Noregi á árunum 2011-13, aftur með Breiðabliki 2014-17 og svo með KR 2017-22. Arnór Sveinn varð Íslandsmeistari með KR 2019. Hann lék tólf landsleiki á árunum 2009-12.
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti Alfreð brosti breitt: „Hafði hárrétt fyrir mér sem betur fer“ Handbolti Óvinur Íslands heldur nú með Íslandi Handbolti Engar hópferðir Íslendinga til Herning Handbolti Þjálfari Dana um Ísland: „Nokkrir af bestu handboltamönnum heims“ Handbolti „Þeir virðast bara vilja brjóta múra fyrir hann“ Handbolti ICE-fulltrúar á Vetrarólympíuleikunum: „Þetta er hersveit sem drepur“ Sport Danir kokhraustir: „Fílingurinn sá að þennan leik eigi þeir að vinna“ Handbolti Farseðill á næsta stórmót í höfn Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Fleiri fréttir Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Sjá meira
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti