Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. október 2024 13:01 Milutin Osmajic læsir tönnunum í Owen Beck. vísir/Dave Howarth Milutin Osmajic, framherji enska B-deildarliðsins Preston, hefur verið úrskurðaður í átta leikja bann af enska knattspyrnusambandinu fyrir að bíta Owen Beck, leikmann Blackburn Rovers.
Auk þess að fá átta leikja bann var Osmajic dæmdur til að greiða sekt upp á fimmtán þúsund pund, eða tæplega 2,7 milljónir íslenskra króna. Atvikið átti sér stað undir lok leiks Preston og Blackburn 22. september. Beck var rekinn af velli fyrir að ráðast á Duane Holes, leikmann Preston. Mikil ólæti brutust út eftir þetta og Beck sagði dómara leiksins að Osmajic hefði bitið sig. Svartfellski framherjinn fékk gult spjald og var svo kærður af enska knattspyrnusambandinu. Og nú er búið að dæma hann í átta leikja bann eins og áður sagði. Osmajic getur því ekki spilað aftur með Preston fyrr en liðið mætir Derby County 23. nóvember. Osmajic kom til Preston frá Cádiz á Spáni í fyrra. Hann hefur skorað fimm mörk á þessu tímabili. Fyrir ellefu árum var Luis Suárez, þáverandi leikmaður Liverpool, dæmdur í tíu leikja bann fyrir að bíta Chelsea-manninn Branislav Ivanovic. Íslenski landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson leikur með Preston sem mætir Burnley í hádeginu á morgun.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira