Jafnt þegar Logi og Brynjar mættust Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2024 19:36 Logi Tómasson lék allan leikinn fyrir Strömsgodset í dag. Liðið situr í tíunda sæti. Getty/Mike Egerton Logi Tómasson og Brynjar Ingi Bjarnason mættust í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þar sem lið þeirra Strömsgodset og HamKam skildu jöfn, 1-1.
Logi lék allan leikinn fyrir Strömsgodset en Brynjar Ingi kom inn á sem varamaður og lék seinni hálfleikinn fyrir HamKam, sem var 1-0 undir í hálfleik. Viðar Ari Jónsson var að sjálfsögðu ekki með HamKam, eftir að hafa margbrotnað í andliti í leik um síðustu helgi. Hilmir Rafn Mikaelsson lék allan leikinn fyrir Kristiansund sem varð að sætta sig við 4-0 skell gegn Bodö/Glimt á útivelli í dag. Bodö/Glimt á titilinn vísan en liðið er sjö stigum fyrir ofan Brann á toppi deildarinnar, þegar sex umferðir eru eftir. Ekkert Íslendingalið er meðal efstu liðanna en Júlíus Magnússon er með Fredrikstad í sjötta sætinu, eftir 1-0 sigur gegn Sveini Aroni Guðjohnsen og félögum í Sarpsborg í gær. Stefán Ingi Sigurðarson var svo í liði Sandefjord fram á 85. mínútu, í 1-0 tapi gegn Rosenborg á heimavelli í dag. Sandefjord er í umpsilsfallsætinu, þriðja neðsta sæti deildarinnar, með 22 stig en aðeins stigi á eftir Haugesund. Odd er næstneðst, einnig með 22 stig, og Lilleström á botninum með 21 stig.
Norski boltinn Mest lesið Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Öruggur sigur City Enski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Sjá meira