Ferguson saknar fótboltans Aron Guðmundsson skrifar 20. september 2024 22:17 Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United og Erik ten Hag, núverandi knattspyrnustjóri félagsins. Vísir/getty Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United og goðsögn í sögu félagsins sem og knattspyrnusögunnar, segist stundum sakna þess að starfa í kringum knattspyrnu.
Frá þessu greindi hinn 82 ára gamli Ferguson í viðtali við BBC Breakfast. Ferguson lét gott heita í þjálfun eftir tímabilið 2012-2013 hjá Manchester United þar sem að liðið endurheimti Englandsmeistaratitilinn en undir hans stjórn hafði Manchester United unnið allt sem hægt var að vinna. „Já ég sakna þess stundum,“ sagði Ferguson í viðtali hjá BBC. „Fyrsta árið eftir að ég hætti í þjálfun fór ég með eiginkonu minni á úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu og sá þá og sagði við hana: „Þetta er það sem ég sakna, stórleikirnir. Evrópuleikirnir“ og ég hef verið tíður gestur á þessum úrslitaleikjum því á þeim finn ég fyrir einhverri tilfinningu sem ég get tengt við. Eitthvað sem ég hefði viljað gera og finna fyrir á hverjum degi." Ferguson er sigursælasti stjóri enskrar knattspyrnu með þrettán Englandsmeistaratitla á ferilskránni og tvo Evrópumeistaratitla. Þá varð hann enskur bikarmeistari fimm sinnum og stýrði Manchester United fjórum sinnum til sigurs í enska deildarbikarnum. Allt frá því að Ferguson yfirgaf sviðið hefur Manchester United gengið erfiðlega að halda uppi þeirri sigurhefð sem hann hafði búið til hjá félaginu sem og stöðugleika.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira