„Maður er bara stoltur af liðinu“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. ágúst 2024 21:44 Höskuldur í baráttunni við Gylfa Þór Sigurðsson í leik kvöldsins. Vísir/Diego Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, lagði upp bæði mörk liðsins er Blikar unnu sterkan 2-0 útisigur gegn Valsmönnum í Bestu-deild karla í kvöld. „
Þetta var hrikalega góður og sterkur sigur,“ sagði Höskuldur í leikslok. „Maður er bara stoltur af liðinu að vera bæði grjótharðir og fastir fyrir varnarlega, en á sama tíma hugrakkir. Við vorum að pressa þá varnarlega allan tímann og héldum vel í boltann.“ „Við vorum með ágæta stjórn á leiknum og svo var Anton [Ari Einarsson] bara í heimsklassa. Hann heldur okkur á floti í byrjun þegar hann á nokkrar vörslur í röð. Svo komum við okkur betur inn í leikinn og menn vou að kasta sér fyrir í lokin og þetta var bara geggjað.“ Blikar voru þó ekki með fullkomna stjórn á leiknum frá upphafi, því Valsmenn voru mun hættulegri fyrri hluta fyrri hálfleiks. „Þeir voru það og eru með mjög mikil einstaklingsgæði. Þeir náðu að búa til dauðafæri, en Anton var bara með ótrúlegar vörslur.“ Þá segir Höskuldur það hafa verið verðugt verkefni að eiga við Gylfa Þór Sigurðsson inni á miðsvæðinu. „Það var auðvitað bara mjög gaman og verðugt verkefni. Og drulluerfitt líka. Hann er aðeins sneggri að fara í lykilsendingar en maður er vanur og maður fékk stundum að finna fyrir því. En heilt yfir bara ótrúlega gaman.“ Hann segir þó að Blikarnir ætli ekki að horfa of mikið í þennan sigur. „Við ætlum ekkert að mikla þetta of mikið fyrir okkur. Við vorum bara staðráðnir í að mæta hugrakkir og mér fannst við ná því eftir svona 15 mínútur í kvöld, bæði með bolta og án. Auðvitað var þetta mjög þýðingarmikill leikur þannig það var risastórt að vinna hann.“
Besta deild karla Valur Breiðablik Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira