Dísætur sigur í Íslendingaslag Sindri Sverrisson skrifar 14. ágúst 2024 19:04 Júlíus Magnússon og félagar í Fredrikstad hafa átt afar góða leiktíð. fredrikstadfk.no Eina mark leiksins kom seint í uppbótartíma þegar Júlíus Magússon fagnaði dísætum sigri með Fredrikstad gegn Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Júlíus er fyrirliði Fredrikstad sem hefur átt afar góðu gengi að fagna sem nýliði í norsku úrvalsdeildinni, en þó átt erfitt uppdráttar í allra síðustu leikjum. Sigurinn í kvöld var því enn sætari og mikilvægari, en hann skilar Fredrikstad upp að hlið Molde í 4.-5. sæti með 31 stig eftir 18 leiki, og eru liðin tveimur stigum á eftir Brann. Þrjú efstu lið deildarinnar eru örugg um að fá Evrópusæti og 4. sætið gæti einnig dugað til þess. Júlíus lék allan leikinn í kvöld en Anton Logi Lúðvíksson kom inn á sem varamaður hjá Haugesund, á 63. mínútu. Haugesund mistókst þar með að komast af botni deildarinnar en liðið er með 17 stig líkt og Sandefjord, stigi á eftir Odd og Tromsö. Í næstefstu deild Noregs lék Keflvíkingurinn Davíð Snær Jóhannsson allan leikinn fyrir Aalesund í 2-0 útisigri á Sandnes Ulf. Sigurinn var mikilvægur fyrir Aalesund sem komst þar með upp í 12. sæti og er með 18 stig, fimm stigum fyrir ofan Sandnes Ulf sem er í 16. og neðsta sæti.
Norski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Sjá meira