Oliver tryggði ÍBV sigur á síðustu stundu í Þjóðhátíðarleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2024 16:05 Oliver Heiðarsson er kominn með tíu mörk í Lengjudeildinni í sumar. Vísir/Anton Brink ÍBV vann 2-1 endurkomusigur á Njarðvík í dag í Lengjudeild karla í fótbolta. Það verður því sungnir sigursöngvar á Þjóðhátíðinni í kvöld.
Sigurmarkið var skrautlegt mark í uppbótatíma leiksins og þökk þessum þremur stigum þá eru Eyjamenn nú bara fjórum stigum á eftir toppliði Fjölnis. Oliver Heiðarsson var hetja dagsins með tvö mörk og fær örugglega góðar móttökur í Herjólfsdalnum í kvöld. Leikurinn fór fram á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum en líkt og síðustu ár þá spila Eyjamenn heimaleik á Þjóðhátíð í Eyjum. Eyjamenn lentu samt undir í leiknum í dag og voru undir í 55 mínútur. Þeir náðu hins vegar að tryggja sér sigur með tveimur mörkum frá Oliver undir lokin. Færeyingurinn Kaj Leo í Bartalsstovu kom gestunum úr Njarðvík yfir á móti sínum gömlu félögum. Hann skoraði markið með laglegu langskot á 24. mínútu leiksins. Þannig var staðan þar til að Oliver Heiðarsson jafnaði metin ellefu mínútum fyrir leikslok með skalla eftir hornspyrnu. Oliver var síðan aftur á ferðinni á þriðju mínútu í uppbótatíma. Aron Snær Friðriksson markvörður Njarðvíkur, átti þá hræðilegt útspark og Oliver skoraði með viðstöðulausu skoti frá miðju. Oliver var að skora sitt níunda og tíunda deildarmark á tímabilinu og er hann nú markahæstur í deildinni ásamt Mána Austmann Hilmarssyni í Fjölni sem er einnig með tíu mörk. Njarðvíkingar hefðu tekið annað sætið af ÍBV með sigri en Eyjamenn eru nú þremur stigum á undan Njarðvík og fjórum stigum á eftir toppliði Fjölnis.
Lengjudeild karla ÍBV UMF Njarðvík Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Sport Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira