Fulham gerir Smith Rowe að dýrasta leikmanni í sögu félagsins Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. júlí 2024 12:31 Emile Smith Rowe er staddur í æfingaferð með Arsenal eins og er en verður fljótlega leikmaður Fulham. Stuart MacFarlane/Arsenal FC via Getty Images Fulham er sagt hafa boðið 35 milljónir punda í Emile Smith Rowe, sem myndi gera hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Arsenal er tilbúið að leyfa leikmanninum að fara en kveður hann með miklum trega.
David Ornstein hjá The Athletic greindi fyrst frá. Smith Rowe er 23 ára vinstri vængmaður eða miðjumaður, uppalinn hjá Arsenal og vakti mikla athygli þegar hann kom upp úr akademíunni en hefur lítið spilað undanfarin tvö tímabil vegna meiðsla. Gabriel Martinelli hefur fest sig í sessi sem byrjunarliðsmaður á vinstri vængnum og Smith Rowe því þurft að sætta sig við bekkjarsetu þegar heilsan leyfir honum að spila. Arsenal batt miklar vonir við leikmanninn og vildi helst halda honum, en félagið sýnir því skilning að hann sækist í meiri spiltíma og sættir sig við upphæðina sem Fulham er tilbúið að greiða. Smith Rowe ferðaðist með Arsenal til Bandaríkjanna þar sem liðið er í æfingaferð næstu vikur en spilaði ekki æfingaleik gegn Bournemouth í nótt. „Það er hlutir að hreyfast bakvið tjöldin akkúrat núna. Við ákváðum að það yrði best að hann tæki ekki þátt í leiknum,“ sagði Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, á blaðamannafundi eftir leik. Smith Rowe yrði dýrasti leikmaður í sögu Fulham ef salan gengur í gegn fyrir 35 milljónir punda, metið var í eigu Jean Michael Seri sem var keyptur á 27 milljónir punda árið 2018.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira