Myndaveisla frá stjörnufans og gleðinni í Víðidal Telma Tómasson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. júlí 2024 14:16 Baltasar Kormákur og Sunneva Weisshappel bíða eftir barni í blíðunni á Landsmóti hestamanna í Víðidal. Vísir/Bjarni Þór Um fimm til sex þúsund manns eru nú á Landsmóti hestamanna sem fram fer á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík. Allt eru þetta áhugamenn um íslenska hestinn, flestir íslenskir en einnig um 2000 erlendir gestir. Búist er við talsverðri fjölgun næstu daga, talið að um sjö til átta þúsund manns verði á svæðinu um helgina.
Mikil stemning er á mótssvæðinu, enda leikur veðrið við hesta og menn. Það er mál manna að aldrei hafi jafn margir hæfileikahestar birst í braut á Landsmóti, bæði í keppni og á kynbótavellinum. Enda eru áhorfendur agndofa af hrifningu. Gestir á Landsmótinu eru á öllum aldri.Vísir/Vilhelm „Keppnin hefur gengið frábærlega og gestir eru ánægðir. Veðrið er stór þáttur þegar haldinn er útihátíð á Íslandi, en við höfum verið mjög heppin og lítur vel út með helgina. Landsmótið í ár stendur vel undir væntingum, hér eru allir aldurshópar að skemmta sér og njóta saman,“ segir Hilda Karen Garðarsdóttir mótsstjóri, í samtali við Vísi. Það er gott að hafa teppi við höndina. Veðurspáin fyrir helgina er með ágætum.Vísir/Vilhelm Landsmótið hefur staðið yfir frá því á mánudag, en um helgina eru á dagskrá allir hápunktar, úrslit í öllum keppnisgreinum og verðlaunaafhendingar. Ásmundur Einar Daðason, barna- og menntmálaráðherra, setti mótið formlega á fimmtudagkvöldinu að viðstöddu margmenni, en hann er af góðum ættum hestamanna kominn. Vísir/Bjarni Þór Í hópreið mættu um 200 knapar, ungir og aldnir, og meðal þeirra voru tveir ráðherrar, þau Áslaug Arna Sigurðurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra. Skemmtilegasta fólk landsins Hjörtur Bergstað formaður Landsmótsins segir mótið hafa gengið framar vonum en svindlsíður sem herja á landsmótsgesti og fjarverandi hestamenn hafa sett skugga á mótið að einhverju leyti. Hjörtur segir ekki annað hægt en að allt gangi vel þegar að skemmtilegasta fólk landsins kemur saman til að halda mót. Hann segir hestamenn halda glaða inn í helgina og segir mótið vera það besta hingað til. Vísir/Vilhelm „Landsmótið hefur gengið vonum framar. Veðrið hefur verið með okkur í liði það hafa komið nokkrir dropar. En það er bara eins og hestakosturinn að veðrið batnar og hestarnir batna og þetta endar síðan í allsherjar veislu á sunnudaginn,“ segir Hjörtur. Fyrsta ball Landsmótsins fór fram í gærkvöldi en margir vel kunnugir hestamenn og skemmtikraftar munu stíga á svið til að skemmta viðstöddum um helgina. Síminn er við höndina og spurning hvort verið sé að skoða úrslitin á Landsmótinu eða eitthvað fyndið á TikTok.Vísir/Vilhelm „Það var mjög vel sótt og gekk allt vel, allt stórslysalaust í kvöld verður síðan Helgi Björns og SalkaSól og Prettybotjokko og svona heldur þetta bara áfram hjá okkur alveg helgina á enda.“ Gestir á Landsmótinu hafa verið varaðir við þó nokkrum svindlsíðum á samfélagsmiðlum og aðallega Facebook sem hafa pening af fólki með því að lofa beinu streymi af mótinu. Hjörtur segist ekki vita til þess að neinn hafi fallið fyrir svindlinu hingað til. „Við settum upp Facebook-síðu sem hefur verið notuð fyrir síðustu Landsmót, það eru komnar einvherjar fjórar eða fimm feik síður sem hafa verið að reyna svindla á fólki ég bara hef sjálfur afskaplega litla þekkingu á þessu og ég er svona að reyna vera gamaldags og halda við blað og kúlupennan en fólk þarf bara að varast þetta. Alls staðar í þjóðfélaginu er verið að nota svona síður til að reyna hrella fólk.“ Stjörnufans í Víðidal Á meðal gesta á Landsmóti eru jafnan þekkt andlit og ekki lét kvikmyndaleikstjórinn og hestamaðurinn Baltasar Kormákur sig vanta ásamt sambýliskonu sinni Sunnevu Ásu Weisshappel og góðum vinum, en meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð um stemninguna á Landsmótinu. Daníel Jónsson er fjarri góðu gamni í ár eftir að hafa fallið af baki og farið úr axlarlið.Vísir/Bjarni Þór Um helgina fer síðan fram glæsileg skemmtidagskrá, með gleði og góðu stuði á dansleikjum að kvöldi. Rjóminn af íslenskum tónlistarmönnum mætir á svæðið, meðal annars Herra Hnetusmjör, Emmsjé Gauti, Stebbi Hilmars, Helgi Björns, Salka Sól, Sigga Beinteins og fleiri. Að neðan má sjá myndir frá stemmningunni í Víðidal. Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Vísir/Bjarni Þór Margir mæta með stóla í brekkuna til að passa upp á bakið sitt og auka þægindin.Vísir/Vilhelm Stemmari!Vísir/Vilhelm Um tvö þúsund erlendir gestir sækja mótið heim.Vísir/Vilhelm Landsmótið er hápunktur ársins hjá hestafólki. Vísir/Vilhelm Fjölmargir mynda fegurðina á mótinu.Vísir/Vilhelm Sést í bláan himinn. Sjaldgæf sjón sumarið 2024 á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm Fjölmenni er í Víðidal og von á fleirum um helgina.Vísir/Vilhelm Blaðamaður lætur öðrum eftir að greina hvort hesturinn sé á tölti, brokki, skeiði, feti eða stökki. Vísir/Vilhelm Derhúfan kemur sterk inn þegar von er á sól.Vísir/Vilhelm Tveir flottir.Vísir/Vilhelm Allar niðurstöður og einkunnir í keppni og á kynbótabrautinni má finna í HorseDay appinu og ítarlega umfjöllun um keppnishluta mótsins og fleira má finna á hestamiðlinum eidfaxi.is.
Landsmót hestamanna Hestar Hestaíþróttir Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira