Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2024 10:30 Þrátt fyrir misjafnt gengi í vetur hefur Erik ten Hag fulla trú á því að hann sé á réttri leið með lið Manchester United. getty/Stu Forster Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið sé í betri stöðu en fyrir ári síðan.
Á síðasta tímabili, því fyrsta undir stjórn Ten Hags, endaði United í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, komst í úrslit bikarkeppninnar og vann deildabikarinn. United er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar fyrir lokaumferðina í dag og endar þar ef liðið nær ekki betri úrslitum en Newcastle United. Ef United endar í 8. sæti verður það versti árangur liðsins frá tímabilinu 1989-90. Strákarnir hans Ten Hags eru þó komnir í bikarúrslit þar sem þeir mæta Manchester City, annað árið í röð. Þrátt fyrir allt telur Ten Hag að United sé á betri stað en fyrir ári síðan. „Þegar þú horfir á úrslitin er svarið nei. En við vitum ástæðurnar fyrir því svo ég myndi segja já,“ sagði Ten Hag og vísaði þar til meiðslavandræðanna sem United hefur lent í vetur. „Við erum með fleiri hágæða leikmenn í hópnum svo að því leyti erum við í betri stöðu. Manchester United er aðlaðandi félag fyrir hvaða leikmann sem er. Við höfum þróað nokkra unga leikmenn og mjög hæfileikaríka leikmenn sem geta gert hópinn betri. Með reyndari og vanari mönnum getur þetta verið góð blanda. Þetta getur verið sterkur hópur sem getur barist á toppnum.“ United mætir Brighton á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Fleiri fréttir Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sunderland - Leeds | Nýliðaslagur í norðrinu Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Sjá meira