Lærisveinar Freys á leið í umspil þökk sé sigri annars Íslendingaliðs Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. maí 2024 18:16 Frey Alexanderssyni gæti tekist hið ómögulega. Aftur. Isosport/Getty Images Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Kortrijk eru á leið í umspil um að halda sæti sinni í efstu deild í Belgíu, þrátt fyrir 3-1 tap gegn Charleroi í dag.
Kortrijk þurfti að ná í það minnsta jafn mörgum stigum og RWDM út úr lokaumferðinni til að komast hjá því að falla beint niður um deild og koma sér í umspilið, en útlitið var ekki gott fyrir lærisveina Freys eftir að liðið lenti 2-0 undir í fyrri hálfleik. Isaak Davies minnkaði muninn fyrir Kortrijk snemma í síðari hálfleik, áður en heimamenn í Charleroi endurheimtu tveggja marka forystu sína með marki á 70. mínútu og þar við sat. Niðurstaðan varð 3-1 sigur Charleroi og ljóst að liðsmenn Kortrijk þurftu að treysta á Íslendingalið Eupen gegn RWDM á sama tíma. Hvorki Guðlaugur Victor Pálsson né Alfreð Finnbogason voru í leikmannahópu Eupen, sem var þegar fallið niður um deild fyrir leik dagsins. Það kom þó ekki að sök því Eupen vann 2-0 sigur og sá til þess að RWDM endaði með 30 stig, einu stigi minna en Kortrijk sem er á leið í umspil við liðið sem endar í þriðja sæti B-deildarinnar.
Belgíski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira