6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Arnar Gauti Bjarkason skrifar 19. apríl 2024 17:45 Porsas, leikmaður Quick Esports, skorar 5. markið gegn DUSTY en 1 af leikmönnum DUSTY datt úr miðjum leik í viðureigninni. Sjötta umferðin í GR Verk deildinni í Rocket League fór fram í gærkvöldi kl. 19:40 þar sem þrjár viðureignir voru spilaðar líkt og gengur og gerist á keppnistímabilinu.
Þór gegn OMON Þór halda flekklausu sigurgöngu sinni áfram í deildinni en unnu Þórsarar OMON 3-0 í viðureigninni í gær. Fyrsti leikurinn fór 2-1, sá annar 4-2 og lokaleikurinn 5-1 allt Þórsurum í vil. 354 gegn OGV OGV nældu sér í sinn fjórða sigur í 6. umferðinni gegn 354 en fór viðureignin 3-1 fyrir OGV. Fyrsti leikur viðureignarinnar fór 2-1 fyrir OGV, svöruðu 354 OGV með sigri í öðrum leiknum, en sá leikur fór í 23 sekúndna framlengingu. Í næstu leikjum viðureignarinnar fór snögglega undan fæti að halla hjá 354 en töpuðu þeir síðustu 2 leikjunum 4-0 og 7-1. DUSTY gegn Quick Esports Sigur Quick Esports gegn DUSTY í síðustu viðureign kvöldsins kemur kannski sumum verulega að óvörum þar sem að DUSTY voru búnir að sigra allar viðureignir sínar að viðureign sinni gegn Þór fráskilinni en þegar kafað er dýpra má sjá að ekki var allt með felldu. Fengu Quick Esports dæmt 3-0 í viðureigninni en í öðrum leiknum datt Paxole, 1 af leikmönnum DUSTY, úr leiknum sökum tæknilegra örðugleika. Að lokum kröfðust Quick Esports sigurs í þriðja leiknum eftir 5 mínútna bið svo fátt sé nefnt.Nánari upplýsingar varðandi þetta atvik má nálgast á upptöku útsendingarinnar. Upplýsingar um núverandi stöðu deildarinnar má nálgast hér á myndinni fyrir neðan: Staða deildarinnar eftir sjöttu umferð. 7. umferð hefst á þriðjudaginn í næstu viku þann 23. apríl kl. 19:40 en allar viðureignir deildarinnar eru sýndar í beinni útsendingu á streymisrás RLÍS.
Rafíþróttir Dusty Þór Akureyri Mest lesið Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti