Bætir í vind og úrkomu í nótt Atli Ísleifsson skrifar 10. apríl 2024 07:13 Hiti verður á bilinu null til sjö stig og mildast sunnanlands. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri austlægri átt víðast hvar á landinu í dag. Það mun þó blása svolítið með suðurströndinni og má gera ráð fyrir strekkingi þar.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði dálítil él eða skúrir á víð og dreif á landinu, en ætti að rofa til norðanlands og sjást vel til sólar. Hiti verður á bilinu null til sjö stig og mildast sunnanlands. Í nótt nálgast lægð úr suðri og úrkomusvæði hennar færist yfir landið, því bætir í vind og úrkomu.Á morgun er spáð austan 8-15 og víða slydda eða snjókoma, en rigning á sunnanverðu landinu. Hlýnar lítillega. Vindur á að verða norðlægari um kvöldið og styttir þá upp að mestu sunnantil á landinu. Á föstudag er síðan spáð norðanátt með ofankomu, einkum fyrir norðan og kólnar aftur í veðri. Ef rýnt er í kortin lengra fram í tímann, þá er spáð kuldatíð fram í næstu viku. Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma, en rigning á sunnanverðu landinu. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 8 stiga hita syðst. Norðlægari um kvöldið og styttir upp sunnantil. Á föstudag: Norðan 8-15. Snjókoma á norðanverðu landinu, slydda á Suðausturlandi, en þurrt að kalla suðvestantil. Vægt frost fyrir norðan, en allt að 5 stiga hiti sunnanlands yfir daginn. Á laugardag: Hæg breytileg átt. Bjart með köflum og yfirleitt þurrt, en líkur á snjókomu suðaustanlands. Frost 0 til 10 stig. Á sunnudag: Norðlæg átt og dálítil él, en bjartviðri sunnan heiða. Kalt í veðri. Á mánudag og þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él. Áfram frost um allt land.
Veður Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira