Hetjan Logi: „Stóru leikirnir eru fyrir mig“ Sindri Sverrisson skrifar 8. apríl 2024 08:31 Logi Tómasson og félagar voru ánægðir eftir sigurmark hans í gær. Mynd/godset.no Logi Tómasson var svo sannarlega hetja Strömsgodset í gær þegar liðið vann stórveldið Rosenborg, 1-0, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Logi skoraði glæsilegt sigurmark.
Logi er að hefja sitt fyrsta heila tímabil sem atvinnumaður erlendis, eftir að hafa farið til Strömsgodset frá meistaraliði Víkings á miðju tímabili í fyrra. Liðið fékk skell í fyrstu umferð norsku deildarinnar í ár, 4-0 á útivelli gegn Molde, og sigurinn í gær var því enn dýrmætari. Sigurmarkið glæsilega úr smiðju Loga má sjá hér að neðan. Logi Tómasson (f.2000) Strømsgodset Rosenborg #Íslendingavaktin pic.twitter.com/DkhTeo0yQh— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) April 7, 2024 Logi, sem er 23 ára, skoraði nokkur glæsimörk fyrir Víkinga og markið í gær var annað mark hans í norsku úrvalsdeildinni. „Mér finnst gaman að skora á móti stóru liðunum,“ sagði Logi í gær en fjögur af níu mörkum hans í efstu deild hér á landi komu til að mynda gegn Val. „Stóru leikirnir eru fyrir mig,“ bætti Logi við en hann skoraði einmitt einnig gegn Rosenborg á síðustu leiktíð. Jörgen Isnes, þjálfari Strömsgodset, var vitaskuld ánægður með sigurmark Loga en sagði: „Þetta var stórkostlega flott mark. Logi er með fullt af mörkum í sér. Þetta var ekki hans besti leikur en markið var gott.“
Norski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Sjá meira