„Núna er bara spurningin hvort þeir séu með rétta þjálfarann eða ekki?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2024 11:31 Valur mætir ÍA í 1. umferð Bestu deildar karla á morgun. vísir/hulda margrét Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, sé undir mikilli pressu að vinna titil, eða titla, í sumar.
Val er spáð 1. sæti Bestu deildarinnar í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports. Valsmenn enduðu í 2. sæti á síðasta tímabili. Miklar væntingar eru gerðar til Vals í sumar, sérstaklega eftir að Gylfi Þór Sigurðsson samdi við félagið. Baldur segir að ekkert annað en titill, eða titlar, komi til greina fyrir Arnar í sumar og pressan á honum sé mikil. „Já, hundrað prósent. Svo einfalt er svarið. Hann er það. Það er bara titill, eða jafn titlar, sem þurfa að koma inn á Hlíðarenda. Hann veit það sjálfur og er ekkert feiminn að segja það,“ sagði Baldur í upphitunarþætti Stúkunnar. Klippa: Stúkan - umræða um Val Guðmundur Benediktsson spurði Baldur hvort Arnar væri undir pressu frá fyrsta leik og þurfi að ná árangri undir eins. „Já, ég held það. Það má ekkert dragast eða þannig. Það verður ekkert þannig, þetta var gott ár og við lentum aftur í 2. sæti, nú tökum við þetta á næsta ári, það er svo góð þróun á liðinu. Það er ekki í boði. Það er þetta ár núna; að fá titil,“ sagði Baldur. Albert Brynjar Ingason var sammála Baldri. „Núna er bara spurning með þjálfarann, hvort þeir séu með rétta þjálfarann eða ekki? Þeir upplifa að hópurinn sé klár og nógu góður til að vinna þetta,“ sagði Albert. Umræðuna um Valsliðið má sjá í spilaranum að ofan. Að neðan má heyra þáttinn í heild sinni, sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Besta deild karla Valur Stúkan Besta sætið Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira