Hrósar Oliver fyrir að brotna ekki og dæma ekki víti á City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. mars 2024 07:30 Atvikið umdeilda undir lok leiks Liverpool og Manchester City. getty/Alex Livesey Kyle Walker, fyrirliði Manchester City, hrósaði Michael Oliver, dómara viðureignarinnar gegn Liverpool, fyrir að dæma ekki vítaspyrnu á Jérémy Doku þegar hann sparkaði í Alexis Mac Allister undir lok leiks.
Liverpool-menn voru afar ósáttir að fá ekki víti en þrátt fyrir að Doku hafi sparkað í bringuna á Mac Allister dæmdi Oliver ekki neitt. Myndbandsdómarinn var á sömu skoðun. Walker var aftur á móti einkar sáttur með Oliver og í viðtali á Sky Sports hrósaði hann honum fyrir að standast pressuna og dæma ekki víti. „Mér fannst dómarinn gera mjög vel. Hann hefði getað brotnað með fólkið á Anfield á bakinu en þetta sýnir reynslu hans og karakter,“ sagði Walker. „Þess vegna er hann talinn einn af bestu dómurum Englands og bestu dómurum heims í augnablikinu.“ Walker steig svo varlega til jarðar er hann var spurður hvort Doku hefði átt að fá á sig víti þegar hann sparkaði í Mac Allister. „Það er ekki mitt að segja. Ef ég segi að þetta hafi ekki verið víti verður það að fyrirsögn. Ef ég segi að þetta hafi verið víti verður það að fyrirsögn,“ sagði Walker. City er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 63 stig, einu stigi á eftir Arsenal og Liverpool þegar tíu leikir eru eftir af tímabilinu.
Enski boltinn Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Aserar áhugalitlir og völlurinn hálftómur Sport Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking Körfubolti Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Fleiri fréttir Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Sjá meira