Bayern muni veita Liverpool samkeppni um Alonso Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. febrúar 2024 09:01 Xabi Alonso verður að öllum líkindum eftirsóttur í sumar. Rene Nijhuis/MB Media/Getty Images Líklegt þykir að þýska stórveldið Bayern München muni veita Liverpool samkeppni um Xabi Alonso, þjálfara Bayer Leverkusen, í sumar.
Gengi Bayern á tímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska á mælikvarða stórveldisins. Liðið er fimm stigum á eftir Bayer Leverkusen í toppbaráttunni í þýsku úrvalsdeildinni, úr leik í þýsku bikarkeppninni og með bakið upp við vegg eftir 1-0 tap gegn Lazio í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Sætið er því farið að hitna undir Thomas Tuchel, þjálfara liðsins, og talið er að líklegra verði með hverjum deginum að hann verði látinn taka poka sinn. Breski miðillinn The Times er einn þeirra sem greinir frá því að líklega sé farið að styttast í að Tuchel verði látinn fara frá Bayern og að félagið ætli sér þá að veita Liverpool samkeppni um að ráða Xabi Alons sem sinn næsta stjóra. Alonso er talinn líklegasti arftaki Jürgen Klopp hjá Liverpool eftir að Þjóðverjinn greindi frá því að hann muni stíga til hliðar sem stjóri félagsins að yfirstandandi tímabili loknu. Xabi Alonso er fyrrverandi leikmaður bæði Liverpool og Bayern München og verður því áhugavert að fylgjast með því hvar Spánverjinn endar.
Þýski boltinn Enski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Sjá meira