Ungliðarnir höfðu nauman sigur gegn ÍA Snorri Már Vagnsson skrifar 30. janúar 2024 22:16 Young Prodigies rétt mörðu ÍA er liðin mættust í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike fyrr í kvöld.
Nýskipað lið ÍA hafði enn ekki sigrað leik eftir jólafrí fyrir viðureignina, en þeir gulu hófu leikinn þó af miklum krafti. Liðið sigraði fyrstu fjórar lotur leiksins áður en Young Prodigies svöruðu fyrir sig, staðan þá 1-4. Young Prodigies minnkuðu muninn í 3-4 en áfram hélt ÍA að taka lotur til sín. ÍA sigraði allar lotur nema eina fyrir hálfleik, en Young Prodigiesnáðu að aftengja sprengjuna í síðustu lotu fyrri hálfleiks. Í fyrsta sinn eftir áramót varð ÍA á undan inn í hálfleik. Staðan í hálfleik: Young Prodigies 5-7 ÍA Young Prodigies hófu seinni hálfleik vel og voru ekki lengi að jafna leikinn í 7-7. ÍA jók forskot sitt í 7-9 en áfram héldu Young Prodigies að halda í við þá og jöfnuðu í 9-9. Young Prodigies komust loksins yfir í stöðunni 10-9 og fóru strax á úrslitalotu í stöðuna 12-9. ÍA þóttust þó ekki ætla að falla svo auðveldlega og komust í stöðuna 12-11. Sigrar ÍA stöðvuðu þó í sporunum, en Young Prodigies fundu sigurlotuna og sluppu með nauman sigur gegn ÍA sem þarf enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri eftir áramót. Lokatölur: Young Prodigies 13-11 ÍA Young Prodigies koma sér því upp fyrir FH og eru sem stendur í sjötta sæti deildarinnar. Ía eru enn í áttunda sæti með 10 stig, en stigaþurrð þeirra stendur enn eftir að hafa ekki sigrað í síðustu fimm leikjum. Stöðu deildarinnar má nálgast hér.
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn