Arteta æfur: „Þetta eru falsfréttir og mér er brugðið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. janúar 2024 16:31 Mikel Arteta segist ekki vera á förum frá Arsenal. getty/ Alex Burstow Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, er langt frá því að vera sáttur við fréttir þess efnis að hann ætli að hætta með liðið eftir tímabilið.
Spænskir fjölmiðlar greindu í gær frá því að Arteta myndi hætta með Arsenal í vor og orðuðu hann við stjórastarfið hjá Barcelona. Xavi hættir með Katalóníuliðið eftir tímabilið. Sky Sports fékk það staðfest í dag að ekkert væri til í fréttum af mögulegu brotthvarfi Artetas. Spánverjinn blés svo hressilega á blaðamannafundi í dag og sagði fréttir gærdagsins þvætting. „Þetta eru falsfréttir og mér er brugðið. Ég trúi þessu ekki. Þetta er ekki stutt með neinum heimildum,“ sagði Arteta. „Ég er á réttum stað með réttu fólki og líður mjög vel. Ég nýt þess að vera á dásamlegri vegferð með þessu félagi og við eigum mikið verk enn óunnið. Samband mitt við stjórnina er sterkt. Hlutirnir gerast á eðlilegan hátt. Þegar rétti tíminn kemur ræðum við um samningsmál og finnum réttu leiðina til að takast á við það.“ Arteta tók við Arsenal í desember 2019. Hann gerði liðið að bikarmeisturum 2020 og kom liðinu aftur í Meistaradeildina í ár efir sex ára fjarveru. Hinn 41 árs Arteta er uppalinn hjá Barcelona en spilaði aldrei fyrir aðallið félagsins. Á ferli sínum lék hann með Paris Saint-Germain, Real Sociedad, Rangers, Everton og Arsenal. Arteta var aðstoðarmaður Peps Guardiola hjá Manchester City áður en hann tók við Arsenal fyrir rúmum fjórum árum.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira