Verður reiður á að horfa á Antony og vill að hann verði seldur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. janúar 2024 08:31 Antony hefur ekki náð sér á strik með Manchester United í vetur. getty/Robbie Jay Barratt Dimitar Berbatov, fyrrverandi leikmaður Manchester United, er ekkert sérstaklega hrifinn af brasilíska kantmanninum Antony og segir að félagið gæti þurft að selja hann ef hann tekur sig ekki taki.
Antony hefur ekki náð sér á strik með United í vetur og hvorki skorað né lagt upp mark í 22 leikjum í öllum keppnum. Berbatov kveðst vera búinn að fá nóg af Brassanum. „Fyrir mig, sem stuðningsmann, þá verð ég reiður þegar ég horfi á hann spila því þetta er pirrandi. Ég vil ekki bera hann saman við neinn því allir leikmenn ganga í gegnum erfiðleika. En ef Antony nær sér ekki á strik þarf hann að fara,“ sagði Berbatov. „Ég finn samt aðeins til með honum því hann er augljóslega hæfileikaríkur og ég sé að hann reynir stundum. Hann virðist vera reiður og pirraður þegar hann spilar og þess vegna reynir hann hluti og flækir þá, tapar boltanum og verður enn pirraðri.“ Berbatov sagði að Antony þyrfti að fá góð ráð til að bæta spilamennsku sína. „Hann þarf einhvern á vellinum til að sýna sér hvert og hvernig hann á að hlaupa og hvenær hann á að losa sig við boltann. Ef hann finnur ekki lausnirnar sjálfur þarf hann þjálfara, vin, umboðsmann, föður til að gefa sér ráð,“ sagði Berbatov. „Ef hann leiðréttir vitleysurnar verður hann góður fyrir liðið. Hann þarf fyrst og fremst að vera klókur og þú þarft að geta tekið gagnrýni. Ef frammistaða hans hefur ekki lagast í lok tímabilsins horfir hann væntanlega í kringum sig.“ United keypti Antony frá Ajax fyrir síðasta tímabil. Hann hefur leikið 66 leiki fyrir Manchester-liðið og skorað átta mörk.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira